Frjáls verslun - 01.09.2001, Page 16
Vitnað
Vísben
Skýringin á þessum mikla mun milli rekstrarafkomu og rekstrarniður-
stöðu eftir skatta [skv. milliuppgjörum 52 fyrirtækja] liggur öll í mjög
mikilli hækkun á bókfærðum fjármagnskostnaði. Þessi liður hækkaði
milli ára úr 1% af veltu á fyrri hluta seinasta árs í um 9,5% á fyrstu 6
mánuðum þessa árs.
Olafur Klemensson (Hálfsársuppgjör íslenskra fyrirtælq'a 2001).
Hattdór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans.
Myndir: Geir Ólafsson
Þetta átti sér aðdraganda í viðleitni, sem kalla mætti „hagstjórn eftír
pöntun“, og er gamalkunnugt fyrirbæri frá þeim tima, er atvinnuvega-
samtök stormuðu í vígi valdsins til að fara fram á gengislækkun, opin-
bera lánafyrirgreiðslu og sem lægsta vexti. Slíkt framferði átti að vera
aflagt með nýju kerfi, þar sem hagstjórnin skyldi miðast við viðbrögð
markaðsaðila, en ekki kröfugerð þeirra.
Bjami Bragi Jónsson (Hagstjórn eftir pöntun - rót vandans).
Gnægð náttúruauðlinda hneigist til að fylla eigendurna falskri öryggis-
kennd og freista þeirra með því móti til að vanrækja undirstöður gró-
andi efnahagslífs, þar á meðal flárfestingu, menntun, millilandavið-
skipti og fijálst framtak. Þarna liggur hundurinn likast til grafinn.
Þorvaldur Gylfason (Olía: Eykur hún hagvöxt? Eflir hiin frið?)
Þó er eins með efnahagsmálin almennt og margt annað að menn verða
að vera búnir að hysja upp um sig buxurnar eftir síðasta ævintýri áður
en hlaupið er af stað í það næsta.
Eyþór Ivar Jónsson (Kreppa á Islandi?)
Áskriftarsími: 512 7575
Hver er stefnan?
andsbankinn-Landsbréf héldu nýlega ráðstefnu undir
yfirskriftinni „Hvert stefnir fjárfestingarheimurinn? -
I Þróun hlutabréfa- og gjaldeyrismarkaða." Erlendir og
innlendir fýrirlesarar fluttu erindi og var ráðstefnan fjölsótt
enda hljóta margir að velta fyrir sér hver þróunin verður, ekki
síst eftir síðustu atburði í Bandaríkjunum. S5
Arnar Jónsson, for-
stödumaður gjaldeyris-
og afleiðuviðskipta hjá
Landsbankanum.
Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR, og ívar J. Arndal aðstoðarforstjóri Tœþlega 60yfirmenn sátu árlegan verkstjórnarfundÁTVR á dögunum.
hlusta á erindi Sigrúnar Láru Shanko frá áhœttustjórn Europay. Myndir: Hreinn Magnússon
Europay berst
gegn kortasvindli
ortasvindl er vaxandi vandamál hér á landi sem og er-
lendis og eru nýleg dæmi um að hingað komi menn
I beinlínis til að svíkja út vörur með fölsuðum eða stoln-
um greiðslukortum. Greiðslukortafyrirtækið Europay hefur
brugðist við þessu með fræðsluátaki og fræddust um 60 versl-
unar- og deildarstjórar ATVR um hvað bæri að varast í greiðslu-
kortaviðskiptum á árlegum verkstjórnarfundi á dögunum.S!]
16