Frjáls verslun - 01.09.2001, Qupperneq 38
YFiRTAKANÁ KEFLAVÍKURVERKTÖKUM
síðar þegar hlutabréfamarkaðurinn rétíir úr kúttnum. Ef menn
álykta sem svo að verðmæti Keflavíkurverktaka séu vanmetin í
bókum félagsins um hálfan milljarð, 500 milljónir, meta þeir það
svo að sannvirði bréfanna, „rétt gengi“, hefði átt að vera í kring-
um 6,2. En eru bréfin meira virði en fæst fyrir þau á markaði
hverju sinni? Varla í hugum þeirra 157 sem hafa selt honum þau.
Þeir 30 hluthafar, sem ekki voru tilbúnir til að selja Bjarna, líta
svo á að hann hafi boðið of lágt verð og er vitað að nokkrir þeirra
voru reiðubúnir að selja á genginu 7,0.
Hvar eru vanmetnu eignirnar? En hvar gætu leynst vanmetn-
ar eignir hjá Keflavíkurverktökum? Félagið hefur fest sér lóðir
við Keflavík, t.d. í Steinás-hverfinu, sem er í brekkunni fyrir
neðan Vallargirðinguna, og er talið vænlegt byggingarland í
framtíðinni. Þá á það 21,7% hlut í líftæknifélaginu Bioprocess
A/S í Danmörku sem er bókfærður á 82 milljónir, en ýmsir
telja „góðar vinningslíkur" í því dæmi og að hluturinn eigi eftir
að margfaldast í verði á næstu árum. Og hvað með 7,08% hlut
Keflavíkurverktaka í Sparisjóðnum í Keflavík sem er annar
stærsti eigandinn í Kaupþingi? Bókfært verð hans er 49,9 millj-
ónir. En er hann ekki miklu meira virði þvi á næstu árum verða
flestir stóru sparisjóðanna orðnir að hlutafélögum og margir
þeirra eiga eftir að sameinast? Og hvað með helstu húseignir
félagsins í Keflavík, eins og Flughótelið og verslunar- og þjón-
ustumiðstöðina Kjarna, sem og húseignir í Njarðvík og við Ný-
býlaveg 18 í Kópavogi. Alls eru þessar fjórar fasteignir bók-
færðar á 772 milljónir, en brunabótamat þeirra er tæplega
1.700 milljónir? Eru þær auðseljanlegar þótt engin lán hvíli á
þeim? Það er ekki sjálfgefið! Þá á félagið þrjú orlofshús, meðal
annars glæsilegan bústað í Vaðnesi í Grímsnesi, og átta bygg-
ingar á Keflavíkurflugvelli sem tæplega verða seldar á meðan
félagið er þar með starfsemi, hver veit þó.
Einkaréttur „innan girðingar“ afmuninn Ýmsir hafa velt fyrir
sér helstu eign Keflavíkurverktaka, sjálfum famtíðartekjum
félagsins, í ljósi þess að einkaréttur þeirra og Islenskra aðal-
verktaka innan Vallarins er að hverfa? Félagið hefur að vísu
gert fimm ára samning við Varnarliðið um alla viðhaldsþjón-
ustu og verkefnastaðan fram undan er sögð ágæt. Engu að síð-
ur ákváðu Keflavíkurverktakar í byrjun síðasta árs að heija
sókn í framkvæmdir utan Vallarins á næstu árum til að mæta
hugsanlegum verkefnaskorti innan hans - eða að minnsta
kosti að vera ekki eins háðir Varnarliðinu í tekjum og áður.
Núna koma um 90% af tekjum Keflavíkurverktaka frá Varnar-
liðinu. Einkarétturinn verður afnuminn í áföngum; 1/3 boðinn
út á þessu ári, 2/3 boðnir út 2002 og árið 2003 verður allt boð-
ið út. Hvað þýðir þetta fyrir framtíð Keflavíkurverktaka og
Bjarna? Félagið hefur sýnt góðan hagnað öll síðustu tíu árin
og hagnaður fyrstu sex mánuði þessa árs var yfir 100 milljón-
ir eftir skatta. En stóra spurningin er sú hvort hagnaður fé-
lagsins muni snarminnka vegna breyttra aðstæðna á Vellin-
um? Fái félagið hins vegar í útboðum ríkulegan skerf af þeirri
80 milljarða ijárfestingu, sem Bandaríkjamenn hyggjast fara í
á Vellinum til ársins 2017, er eftir miklu að slægjast. Af þessu
sést að umræðan um vanmat á eignum og að „rétt gengi“ í við-
skiptum með bréfin hefði átt að vera á bilinu 6,0 til 7,0, eða
þaðan af hærra, er nokkuð flókin. Nema verið sé að ræða um
að leysa félagið upp, sem tæplega er í pípunum á meðan það
hefur skuldbundið sig til verka næstu fimm árin.
„Strákurinn á alls ekki alla bessa penínga" Menn hafa spurt
sig að því hver þessi Bjarni sé eiginlega og hvernig honum hafi
tekist að ná Keflavíkurverktökum undir sig á svo skömmum
tíma, ekki síst vegna þess að „strákurinn á alls ekki alla þessa
peninga", eins og það er orðað, eða um 1.250 milljónir sem
hann hefur lagt í fyrirtækið. Hann þurfti aukin heldur ekki að
gera yfirtökutilboðið eftir að hann var búinn að ná meirihlutan-
um í fyrirtækinu, 50,3%, þar sem fyrirtækið er ekki á aðallista
Verðbréfaþings heldur á tilboðsmarkaði. Hins vegar er rétt að
minna á að það þarf að ráða yfir 67% hlut í hlutafélagi til að
breyta samþykktum þess, 80% hlut til að losna við margfeldis-
kosningu og fá alla menn í stjórn og 90% hlut til að geta innkall-
að afganginn af hlutafénu. Þá má geta þess að 10% hluthafa í fé-
lagi geta óskað eftir hluthafafundi.
Þess vegna komst hann yfir félagið Meginástæða þess að
Bjarni náði félaginu undir sig er sú að þetta er félag sem hefur
verið lokað og nánast harðlæst í um 40 ár. Til að opna félagið
var ákveðið að fara með það út á markað til að auðvelda hlut-
höfum að selja bréf sín, en margir vildu losna út úr dæminu.
Um leið varð félagið hins vegar gegnsætt og yfirtaka á því auð-
veldari. Það er einfaldlega eðlilegur hluti af hlutabréfamarkaði
að einhverjir yfirtaki félög reglulega og í hlutabréfakreppu
skjóta þau tækifæri upp kollinum oftar en ekki.
Það var árið 1956 sem iðnaðarmenn stofnuðu fiögur félög
suður með sjó. Þetta voru Rafmagnsverktar Keflavíkur,
Málaraverktakar Keflavíkur,
Járniðnaðar- og pípulagninga-
verktakar Keflavíkur og loks
Byggingaverktakar Keflavíkur.
Megintilgangur þessara félaga
á sínum tíma var að tryggja iðn-
aðarmönnum á Suðurnesjum
aðgang að þeim miklu framkvæmdum fyrir Varnarliðið sem
áttu sér stað á Keflavíkurflugvelli. Saman mjmduðu félögin síð-
an sameignarfélagið Keflavíkurverktaka sf. hinn 30. október
1961. Þegar félagið var gert að hlutafélagi um mitt ár 1999 með
187 hluthöfum voru gömlu félögin fjögur lögð niður í framhald-
inu. Margir þessara hluthafa voru orðnir ellilífeyrisþegar sem
vildu ná í „lífeyriseign" sína í Keflavíkurverktökum. Sömuleið-
is var nokkuð um erfingja, þ.e. aðra og þriðju kynslóð, sem
ekki vildu láta segja sér lengur að þeir ættu íjársjóð sem þeir
gætu ekki nálgast öðruvísi en í formi arðgreiðslna, hafi þeir á
annað borð fengið arð því nokkuð var lagt upp úr því að halda
óráðstöfuðum hagnaði inni í Keflavíkurverktökum sf. til að fé-
lagið yrði sem sterkast. Þótt félögin ijögur sem áttu Keflavíkur-
verktaka væru mjög lokuð tókst ýmsum að eignast hluti í þeim
í gegnum klíku, en mjög miklar hömlur voru á viðskiptum með
hlutabréf í þeim.
Þetta er sparibaukur Það að líkja Keflavíkurverktökum við
sparibauk er ekki ljarstæðukennt. Fjárhagslega er félagið
firnasterkt. Heildareignir þess samkvæmt milliuppgjöri 30.
júní sl. voru 1.969 milljónir. Heildarskuldir voru aðeins 545
Á þessum bæ vita menn ekki hvað gengistap vegna erlendra
skulda er. Það er eitthvað sem þeir heyra og lesa um í fjöl-
miðlum að valdi taprekstri víða annars staðar.
38