Frjáls verslun - 01.09.2001, Blaðsíða 105
Trausti Reynisson, verslunarstjóri í Hagkaup í Smáralind: „Þegar þetta stækkaði og Baugur varð til langaði mig til að breyta til og fór að vinna
hjá Hagkauþ þar sem ég hefverið í tvö ár. “ Fv-Mynd: Geir Olajsson.
Trausti Reynisson,
Hagkaup Smáralind
Efiir Vigdísi Stefánsdóttur
Trausti Reynisson, versl-
unarstjóri í stærstu
verslun landsins, Hag-
kaup í Smáralind, hefur unn-
ið við verslun stærstan hluta
ævinnar og segir verslunar-
störf eiga hug sinn allan.
„Eg vinn þetta starf nú
ekki einn,“ segir hann og
brosir við. „Með mér eru
þijár konur í yfirstjórninni
sem gerir að verkum að
þetta er auðvitað hálfgert
kvennaríki en þær stjórna
innkaupum í matvöru og sér-
vöru og sjá um rekstarsviðið.
Við hittumst daglega kl. 10
og förum yfir stöðuna, skoð-
um daginn áður og berum
saman við fyrri ár og gerum
plan fyrir það sem er á döf-
inni.“
Starf verslunarstjóra felur
í sér að gera áætlanir um
sölu og innkaup ásamt því að
ná sölutakmörkum sem sett
eru og því að halda viðskipta-
vinum verslunarinnar
ánægðum. Þegar verslunin
er svo stór sem þessi, 10 þús-
und fermetrar, liggur í aug-
um uppi að verkið er all-
nokkuð og til þess þarf
dugnað og skerpu.
„Eg er fæddur í Reykjavík
og bjó fyrstu árin á Lindar-
götu en fluttist svo í Ar-
bæinn,“ segir Trausti. „Það-
an flutti ég í Seljahverfi. Þeg-
ar ég flutti að heiman keypti
ég mér íbúð í Hafnarfirði og
bý þar í dag.“
Dóttir Trausta, Sunna,
býr hjá móður sinni. Trausti
býr með Agnesi Elfar og
dóttur hennar.
Trausti fór í Fjölbrautar-
skólann i Armúla og var þar
um tíma en lauk ekki prófi.
Hann ákvað að leggja fyrir
sig smíðar og vann við þær í
rúmt ár en hugurinn leitaði í
verslun þar sem hann hafði
unnið um 10 ára skeið í Hóla-
garði, hjá Gunnari Snorra-
syni. Því varð úr að hann
hætti smíðunum og fór að
vinna í Bónus þar sem hann
var næstu sex árin, m.a. sem
verslunarstjóri. Hann segir
Bónus góða uppeldisstöð og
að þar sé gaman að vinna.
„Þegar þetta stækkaði og
Baugur varð til langaði mig
til að breyta til og fór að
vinna hjá Hagkaup þar sem
ég hef verið í tvö ár. Eg var
verslunarstjóri í Hagkaups-
búðinni á Smáratorgi sem
svo fluttist hingað yfir og ég
með. Ég hef sótt ansi mörg
námskeið á vegum Baugs og
m.a. var ég á Öngulstöðum í
fyrra að læra viðskiptafræði
en þar fyrir utan hafa nám-
skeiðin verið af ýmsum toga
og margvíslegum," segir
Trausti.
Hvað áhugamál varðar
eru þau að mestu bundin
heimilinu, þegar aðaláhuga-
málið, vinnan, er frátalin.
„Vinnudagurinn er oft
langur en það er í lagi því ég
hef mjög gaman af vinn-
unni,“ segir Trausti. „Annars
eyði ég frítímanum að mestu
með fjölskyldunni og svo hef
ég gaman af því að fíflast
með félögunum í fótbolta og
því að fara í World Class, en
það geri ég fimm sinnum í
viku, um og upp úr kl. sex á
morgnana. “H3
105