Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2002, Síða 46

Frjáls verslun - 01.09.2002, Síða 46
STJÓRNUN STflRFSMATSVIÐTðL Hið fullkomna starfsmatsviðtal Regluleg starfsmatsvidtöl þar sem stjórnendur og starfsmenn hittast til að fara á hreinskilinn og uppbyggilegan hátt yfir starfið, framvinduna og árangurinn erhluti af nauösynlegri og nútímalegri stjórnun. Kunnátta til ab leiða slíkt viðtal er ekki meðfædd, hana verður að læra eins og flest annað. Samantekt: Guðrún Helga Sigurðardóttir Símon Ellis kemur í árlega skoðun til læknisins. Síðast var vandamálið streita í vinnunni. Nú er hann kominn í starf hjá nýju fyrirtæki og likir því saman við dagsbirtu eftir fimm ár í myrkri því að nú veit hann hvað hann á að gera og hvaða stöðu hann hefur í fyrirtækinu. „Aldrei hlustaði nokkur maður, enginn sagði hvað ætti að gera. Maður var svo hjálpar- vana. Það var streituvaldurinn. Gott fólk fór af því að það fékk ekki nóg út úr starfinu. Lélega fólkið var um kyrrt af því að eng- inn tók eftir þvi. Maður skyldi halda að það væri hagur vinnuveit- andans að ná því besta út úr fólki, eða hvað? Fá starfsmönnum verk sem þeir eru góðir í og þjálfun ef þess þarf. Manni gafst aldrei tækifæri til að ræða við yfirmanninn um vinnuna sína. Hvort ég væri ánægður, hvort þeir væru ánægðir, hvernig allt gengi,“ segir Símon við lækninn. Heimsókn Símonar til læknisins er að finna á myndbandi hjá Vídeó & tölvulausn og eru þar ýmsar skemmtilegar dæmisögur. I viðræðum Símonar og læknisins felst nefnilega kennsla í því hvernig góð starfsmatsviðtöl eiga að fara fram. Við höfum tekið saman nokkur dæmi. Illa undirbliinn Stjórnandi Símon er skyndilega kallaður inn til yfirmannsins til að ræða frammistöðuna. Yfirmaðurinn vill ljúka því af í hvelli því hann hefur mikið að gera og þarf að ræða við marga. Fljótlega kemur í ljós að yfirmaðurinn hefur ekkert und- irbúið sig fyrir viðtalið, hvað þá að gefa Símoni færi á slíku. „Verst hvernig allt fór í handaskolum með enduropnunina," slær stjórnandinn fram. „En ég var ekki að vinna við enduropnunina,“ svarar Símon. „Nú? Var það ekki?“ svarar stjórnandinn. „Hef- urðu farið á einhver námskeið? Eða í e-nám?“ spyr yfirmaðurinn og Símon bendir honum á að hann hafi beðið um slíkt í fyrra en ekki fengið. Yfirmaður Símonar baunar fram ósanngjarnri gagn- rýni og Símon verst fimlega. Niðurstaða: „Hann reyndi ekki að komast að einföldum staðreyndum um mig, hann sagði mér ekki einu sinni að ég færi í mat á frammistöðu eða gaf mér um- hugsunartíma. Hann talaði ekki við stjórnanda alþjóðasviðs um það sem ég vann og hann hafði ekki minnispunkta frá síðasta starfsviðtali. Hann hafði ekki einu sinni flett upp í skránni um mig. Aðalsamtal okkar á árinu og hann vann ekki 5 mínútna heimavinnu! Hann hafði ekki áhuga.“ Lærdómurinn: Undirbúningur er milálvægur, bæði af hálfú stjórnand- ans og starfsmannsins. Gagnrýndu verk, ekki persónur Símon var í þrjú ár í markaðs- deildinni hjá Ivan hinum stressaða og þar gekk ekki nógu vel. Símon Ellis kemur í sína árlegu læknisskoðun og fær þar útrás fyrir það sem miður fór á gamla vinnustaðnum. „Aldrei hlustaði nokkur maður, enginn sagði hvað ætti að gera. Maður var svo hjálparvana. Það var streituvaldurinn." Yfirmaður Símonar baunar fram ósanngjarnri gagnrýni og Símon verst fimlega. Niðurstaða: „Aðalsamtal okkar á árinu og hann vann ekki 5 mínútna heimavinnu! Hann hafði ekki áhuga."
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.