Frjáls verslun - 01.10.2002, Blaðsíða 45
Nokkrir af reyndustu ráðgjöfum IBIUI á fundi. F.u.: Frans Páll Sigurðsson, upplýsingatæknisuiði, Reynir Kristinsson, fram-
kuæmdastjóri, Þorsteinn Þorsteinsson, stjórnunarráðgjöf, Suali Björguinsson, starfsmannaþjónustu, og Þröstur Sigurðsson,
fjármálaráðgjöf.
Þekkingarleg tengsl eru lífæð okkar og helsti
styrkur
Starfsmenn IBM Business Consulting Services á íslandi eru um 40 og
búa starfsmenn yfir mjög fjölbreyttri menntun og reynslu sem aflaö
hefur verið bæði hér á landi og erlendis. Starfsmenn fyrirtækisins hafa
þá einstöku stöðu að vera tengdir innraneti IBM og öllum þekkingar-
grunnum fyrirtækisins. Einnig hafa þeir greiðan aðgang að öðrum sér-
fræðingum fyrirtækisins um allan heim þegar á þarf að halda í sér-
stökum verkefnum. Starfsmenn hér á landi hafa einnig tekið þátt í verk-
efnum IBM erlendis þar sem þekking þeirra og reynsla nýtist. Þessi
hluti starfseminnar hefur vaxið mjög undanfarið og eru nú íslenskir
ráðgjafar við störf erlendis við innleiðingu bæði Oracle og SAP.
Viðskiptaáætlanir og kostnaðarstjórnun
Þegar rætt er um einstök verkefni nefnir Reynir m.a. að IBM BCS hafi
verið leiðandi í innleiðingu stefnumótunar og samhæfðs árangursmats
og eru mörg slík verkefni í vinnslu núna. Vaxandi skilningur er á því að
tengja saman stefnumótun, árangursstjórnun og upplýsingagjöf til
hagsmunaaðila til þess að auka verðmæti hluthafanna eða bæta þjón-
ustuna í opinberum rekstri. Opinber fyrirtæki hafa verið mjög áhuga-
söm og sýnt frumkvæði við að koma á samhæfðu árangursmati.
„IBM BCS hefur einnig unnið að gerð fjölmargra viðskiptaáætlana á
undanförnum árum,“ segir Reynir. „Áberandi er hversu skilningur og
þekking á gerð og mikilvægi viðskiptaáætlana hefur aukist og eru fyrir-
tæki í auknum mæli farin að nýta sér gerð slíkra áætlana fyrir innra
starf sitt. Meðal verkefna fyrirtækisins eru viðskiptaáætlanir fyrir
FARICE hf., sem er samstarfsverkefni fjarskiptafyrirtækja á íslandi og
í Færeyjum og um vísindagarða (Science Park) fyrir Háskóla íslands.
Síðustu misserin hafa mörg fyrirtæki lagt áherslu á að efla rekstrar-
stýringu til að skera niður kostnað. ( því sambandi eru allir hlutir
Hjá IBM starfa nú um 300.000 manns um
allan heim. Starfsemi fyrirtækisins skiptist í
fjögur meginsuið: Global Seruices, Softuuare,
Harduuare og Global Financing. IBM Business
Consulting Seruices fellur undir Global
Seruices, en þar starfa alls um 180.000
manns. IBM á íslandi er hluti af IBM Nordic
skoðaðir, þar á meðal innkaupa- og birgðastýring og nýjar leiðir sem
tengjast netinu og notkun innkaupakorta."
Mikiluægi starfsmanna
„Vaxandi áhugi er einnig fyrir þeim þáttum sem lúta að stjórnun og
starfsmannamálum. Fyrirtæki nota sérfræðinga IBM BCS til þess að
greina viðhorf starfsmanna og á grundvelli slíkra rannsókna er unnið
með stjórnendum og starfsmönnum að breytingum og uppbyggingu
hópeflis þar sem þess er þörf.
Á sama hátt og áhugi hefur vaxið fyrir viðhorfum starfsmanna gera
flestir sér Ijóst mikilvægi viðskiptavina og því hefur IBM BCS fram-
kvæmt margar kannanir og rannsóknir á viðhorfum þeirra og aðstoðað
fyrirtæki við þjálfun starfsmanna til að bæta þjónustu sína."
IBM BCS heldur áfram starfsemi markaðssviðs PwC Consulting af
fullum krafti og stendur meðal annars áfram að gerð skoðanakannana
sem gerðar voru undir heiti PricewaterhouseCoopers en voru þar áður
kenndar við Hagvang.
Haguangur enduruakinn
„Við breytingarnar var ákveðið að taka aftur upp hið gamalkunna nafn
Hagvang fyrir ráðningarþjónustu fyrirtækisins. Þar er sem fyrr lögð
áhersla á skjóta og góða þjónustu sem byggist á mikilli reynslu og beitt
er sérfræðiþekkingu og prófunum til þess að samhæfa þarfir fyrirtækj-
anna við þekkingu og reynslu umsækjenda."
Langtímalausnir
„Við leggjum eftir sem áður áherslu á langtímasamband við viðskipta-
vini sem sterkur samstarfsaðili og einbeitum okkur að ná og viðhalda
árangri til langs tíma. Við bjóðum samhæfðar, aðlagaðar lausnir á
öllum stigum virðiskeðjunnar en það minnkar áhættu viðskiptavina og
við búum yfir djúpum skilningi á aðstæðum og þörfum viðskiptavina
okkar en það byggist á langtímarannsóknum fyrirtækisins og mikilli og
fjölbreyttri reynslu starfsmanna. Hvort sem viðskiptavinurinn er lítill
eða stór, þjónum við honum af kostgæfni og látum hann njóta allrar
þeirrar reynslu, þekkingar og kunnáttu sem finnst innan IBM.“H!1
sem spannar starfsemina á Norðurlöndum og
í Eystrasaltslöndunum.
Skógarhlíð 12-105 Reykjavík
Sími 580 4300 ■ Fax 5S0 4301
45
KYNNING