Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2002, Page 52

Frjáls verslun - 01.10.2002, Page 52
ATHflFNAFÓLK í LONDON MMC dreifir blöðum á 80 heildsala, sem í sameiningu eru með 55 þúsund blaðsölu- staði. „Við dreifum ekki öjlum blöðunum í allar búðir því mörg hobbíblöð eru til dæmis bara seld í stærstu bókabúðunum en ekki í sjoppunni á horninu." lofti eða með flutningabílum, eftir því hver áfangastaðurinn er. Það er einnig hlutverk fyrirtækisins að sjá til þess að heild- salarnir séu tilbúnir að taka á móti blöðunum, koma þeim í búðirnar og sjá til þess að búðirnar séu tilbúnar að taka á móti blöðunum og að strikakóðinn sé skannaður inn. Auk almennrar dreifingar sér MMC einnig um einstakar söluherferðir og þá er margt, sem þarf að samhæfa. Til dæmis er eitt af blöðunum, sem MMC dreifir, tímarit um Porchebíla og nýlega var það blað kynnt í 635 Barnes & Nobles bókabúðum í Bandaríkjunum. Það er að mörgu að huga í slíku tilfelli, bæði að búðirnar fái blöðin samtímis, að kynningarefnið skili sér og að búðirnar séu tilbúnar með allt á réttum tíma. Ein nýjung, sem MMC hefur bryddað upp á, er að láta þýða blöð og gefa út á fleiri tungumálum. Þetta hefur til dæmis verið gert með enskt hárgreiðslublað, sem hefúr verið þýtt á þýsku, hollensku og sænsku. „Viðtökurnar voru mjög góðar,“ segir Margrét. „Það var engu líkara en að markaðurinn hefði verið að bíða eftir þessu.“ Kosturinn við að vera til staðar í mörgum lönd- um getur einmitt verið sá að þá er hægt að koma auga á ónýtta möguleika. Auk enska fyrirtækisins hefur Margrét verið viðriðin sams konar rekstur á íslandi, þar sem hún átti hlut í fyrirtækinu Blaða- dreifingu með vini sínum Guðmundi Sigmundssyni. Þetta fyrir- tæki seldu þau fyrir rúmu ári til Pennans, en Penninn hafði áður keypt hlut í fyrirtæki þeirra. Líkt og MMC sá íslenska fyrirtæk- ið um að dreifa tímaritum í búðir og að allt kæmi heim og sam- an í dreifingunni, en íslenska fyrirtækið dreifði eingöngu erlend- um blöðum. „Öll blaðadreifingafyrirtæki starfa svipað," segir Margrét, „en stærð markaðins hefur auðvitað sitt að segja. hjá fyrirtæki í eigu keppinautanna. Við erum með 200 titla í tíma- ritum, ýmist viku- eða mánaðarrit eða tímarit, sem koma út aðra hveija viku.“ Af eigendunum eru flórir, sem vinna fulla vinnu í fyrirtækinu, einn er í hálfri vinnu og einn er kominn á eftirlaun. Verkefiiunum skipta þau á milli sín og Margrét er býsna ánægð að vera með útflutningsdeildina. Hlutur fyrirtækis eins og MMC í tilurð og markaðssetningu tímarita er býsna viðamikill. Sá sem fær hugmynd að tímariti getur komið til MMC og fengið ^dirgripsmikla ráðgjöf um allar hliðar útgáfunnar, nema sjálft efnið, sem væntanlegur útgefandi hefur vísast þegar hugmyndir um sjálfur. „Sá sem kemur til okkar með hugmynd að tímariti verður að sanna fyrir okkur að það sé markaður fyrir blaðið og takist honum að telja okkur á að það sé vit í útgáfunni komum við með okkar ráð,“ segir Margrét. „Við leiðbeinum um hönnun forsíðunnar, sem er aðal sölu- tólið. Við ráðleggjum um stærð á upplagi, hjálpum til að finna besta prenttilboðið, tölum við heildsalana og verslanakeðjurnar um að taka tímaritið í sölu og sjáum um að koma tímaritinu bæði á innlendan og erlendan markað. Við erum með átta svokaflaða „account managers", sem sjá um sambandið við útgefendm- og söludeild okkar og búðakeðjurnar, sem selja blöðin. Við sjáum um að allt gangi vel hjá útgefendum og bendum þeim á hvað virkar og hvað ekki.“ Það krefst slípaðs skipulags að sjá til þess að koma blaði í búðirnar. Allir þurfa að fá blaðið á sama tíma. Sjálf dreifingin á ekki að taka meira en þijá daga. Blöðunum er dreift á sjó eða Hörð samkeppni MMC dreifir blöðum til 80 heildsala, sem í sameiningu eru með 55 þúsund blaðsölustaði. „Við dreifum ekki öllum blöðunum í allar búðir því mörg hobbíblöð eru til dæmis bara seld í stærstu bókabúðunum en ekki í sjoppunni á horn- inu,“ segir Margrét. Heildsalarnir eru nauðsynlegur milliliður sökum stærðar markaðarins. Á Norðurlöndum eru engir slikir milliliðir. Ef blaðið kostar eitt pund í lausasölu fá útgefendur venjulega 50-55 pens og heildsalinn 40 pens. Afgangurinn skipt- ist á milli dreifingarfyrirtækisins og annarra. Það eru þvi fá pens þar, sem dreifast á marga. Þegar upphæðirnar eru svo lágar er eins gott að magnið bæti það upp. „Þetta er dæmi, sem aðeins gengur upp á stórum markaði,“ bendir Margrét á og segir að samkeppnin sé sannarlega hörð. Margir nýir útgefendur, sem vilja komast á markaðinn, tala oft við heildsala bókakeðjunnar W H Smith, sem lætur viðkom- andi hafa lista yfir dreifingaraðila. „Fyrirtækin eru ekki fleiri en svo að venjulega er talað við öll fyrirtækin og þá er spurn- ingin hvert okkar hreppir verkefnið. En það er líka oft að við kærum okkur ekki um verkefnið ef okkur sýnist að við höfum ekki lágmark upp úr dreifingunni. Það er jafnmikil eða meiri vinna við að dreifa fimm þúsund blöðum en 100 þúsund. Við erum öll að keppa um þetta litla pláss sem er í tímaritahillun- um í búðunum." Flest blöðin eru Jjármögnuð með auglýsingum og til að hefja blaðaútgáfu þarf annaðhvort íjársterkan bakhjarl eða að hafa tryggt sér nóg af auglýsingum. Auglýsingarnar skipta afkomuna „Við vorum öll yfirmenn hjá öðru dreifingarfyrirtæki og sáum þá autt rými á markaðnum, sem var að koma upp óháðu dreifingarfyrirtæki en að öll stærstu dreifingarfyrirtækin eru í eigu blaðaútgefenda “ 52
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.