Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2002, Page 87

Frjáls verslun - 01.10.2002, Page 87
SflGflN BflK VIÐ HERFERÐINfl Árið 1985: Úr herferð Iðnaðarbankans „Með á nótunum". Árið 2002: Úr herferð íslandsbanka „Með allt á hreinu". voru tilbúnir til samstarfs lá beint við að nota lagið í auglýsinga- herferðinni. Grípandi lag getur verið 50% af góðri sjónvarps- auglýsingu. Við handritsgerðina voru samdar nokkuð margar sögur sem snertu ólíka hópa og ólíkar kringumstæður.“ Vinsæl meflal allra aldurshópa í auglýsingamælingum hefur komið fram að sjónvarpsauglýsingin er mjög vinsæl meðal allra aldurshópa. Hugskotsmælingar sýna að auglýsingaeftirtekt er mjög góð, að sögn Sverris. Hvatningin „Vertu með allt á hreinu“ birtist svo einnig í blaðaauglýsingum og veltiskiltum þar sem byggt var á minnum úr sjónvarpinu. Þemað hefur síðan verið tekið upp á fleiri sviðum markaðsstarfsins. T.d. er þjónusta við fýrirtæki á útibúasvið keyrð undir þemanu „Allt fýrir fýrirtæki.“ Áður en herferðin fór í loftið var haldin mikil hátíð í Valsheim- ilinu þar sem herferðin var sýnd. Starfsfólkið sameinaðist þar um þemað og var með allt á hreinu við undirleik Stuðmanna fram á nótt. „Með á nótunum" Þetta er ekki fýrsta bankaauglýsingin sem Stuðmenn eiga þátt í. Árið 1985 lét fðnaðarbankinn gera auglýs- ingaherferð þar sem þemað var „Með á nótunum“ en þar sungu Stuðmenn einmitt. Magnús Pálsson, sem núna er forstöðumað- ur Þróunar hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar, var á þeim tíma starf- andi hjá Iðnaðarbankanum og var einn þeirra sem fékk Stuð- menn til liðs við bankann. „Vextir voru smám saman gefnir frjálsir og bankar og sparisjóðir fengu meira svigrúm til að ráða sínum málum sjálfir. Fjárfestingar breyttust og fólk gat valið um að að ijárfesta á annan hátt en í steinsteypu. Upp úr þessi hófst mikil umræða um nauðsyn þess að endurskipuleggja banka- kerfið í heild sinni og því er sú umræða ekki alveg ný.“ Kynnlngill Skiptir máli Magnús segir að hafin hafi verið kerfis- bundin stefnumótunarvinna með tilheyrandi breytingum í skipulagi og innra starfi bankans. Sérstakt markaðs- og vöruþró- unarsvið var m.a. sett á laggirnar og mörkuð stefna á þeim svið- um sem kerfisbundið var fýlgt eftir. Það vaknaði áhugi á því að búa til leikna auglýsingu sem þá hafði ekki verið mikið gert af og Stuðmenn sömdu lagið „með á nótunum“ sem notað var í auglýsinguna. „Efnt var til víðtæks kynningarstarfs undir kjörorðunum „nútíma banki“,“ segir Magnús. „Iðnaðarbankinn tók fýrstur banka í notkun hraðbanka á árinu 1984 og skömmu síðar kynnti hann velheppnaða reikninga eins og Bónusreikning og Alreikning. Skilaboðin í þessu heildarátaki bankans voru síðan kynnt með ímyndarauglýsingu sem gengið hefur undir heitinu „með á nótunum“. Bankastjórinn í auglýsingunni sýnir þar af sér nýja hlið og boðar í rauninni nýja tíma. Með þessu vildi bankinn segja að hann væri fýrir viðskiptavinina og að eftir- sóknarvert væri að vera í góðum málum fjármálalega séð og textinn í auglýsingunni var: Þeir uppskera ekkert sem halda að sér höndunum og halda að allt getí farið úr böndunum. En ég ætía að koma undir mig fóúmxun og Iðnaðarbankinn er með á nótunum. „Með auglýsingunni mátti segja að stigið væri nýtt skref sem gaf til kynna að við værum að losna úr höftum,“ segir Magnús. „Undirtektirnar á þessari auglýsingu fyrir sautján árum voru mjög góðar enda skilar vel sú auglýsingaherferð, sem studd er góðum undirbúningi starfsfólks og annarra, venjulega árangri.“S!] Grípandi lag getur verið 50% af góðri sjónvarpsauglýsingu. 87
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.