Frjáls verslun - 01.10.2002, Blaðsíða 87
SflGflN BflK VIÐ HERFERÐINfl
Árið 1985: Úr herferð Iðnaðarbankans „Með á nótunum".
Árið 2002: Úr herferð íslandsbanka „Með allt á hreinu".
voru tilbúnir til samstarfs lá beint við að nota lagið í auglýsinga-
herferðinni. Grípandi lag getur verið 50% af góðri sjónvarps-
auglýsingu. Við handritsgerðina voru samdar nokkuð margar
sögur sem snertu ólíka hópa og ólíkar kringumstæður.“
Vinsæl meflal allra aldurshópa í auglýsingamælingum hefur
komið fram að sjónvarpsauglýsingin er mjög vinsæl meðal allra
aldurshópa. Hugskotsmælingar sýna að auglýsingaeftirtekt er
mjög góð, að sögn Sverris. Hvatningin „Vertu með allt á hreinu“
birtist svo einnig í blaðaauglýsingum og veltiskiltum þar sem
byggt var á minnum úr sjónvarpinu. Þemað hefur síðan verið
tekið upp á fleiri sviðum markaðsstarfsins. T.d. er þjónusta við
fýrirtæki á útibúasvið keyrð undir þemanu „Allt fýrir fýrirtæki.“
Áður en herferðin fór í loftið var haldin mikil hátíð í Valsheim-
ilinu þar sem herferðin var sýnd. Starfsfólkið sameinaðist þar
um þemað og var með allt á hreinu við undirleik Stuðmanna
fram á nótt.
„Með á nótunum" Þetta er ekki fýrsta bankaauglýsingin sem
Stuðmenn eiga þátt í. Árið 1985 lét fðnaðarbankinn gera auglýs-
ingaherferð þar sem þemað var „Með á nótunum“ en þar sungu
Stuðmenn einmitt. Magnús Pálsson, sem núna er forstöðumað-
ur Þróunar hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar, var á þeim tíma starf-
andi hjá Iðnaðarbankanum og var einn þeirra sem fékk Stuð-
menn til liðs við bankann. „Vextir voru smám saman gefnir
frjálsir og bankar og sparisjóðir fengu meira svigrúm til að ráða
sínum málum sjálfir. Fjárfestingar breyttust og fólk gat valið um
að að ijárfesta á annan hátt en í steinsteypu. Upp úr þessi hófst
mikil umræða um nauðsyn þess að endurskipuleggja banka-
kerfið í heild sinni og því er sú umræða ekki alveg ný.“
Kynnlngill Skiptir máli Magnús segir að hafin hafi verið kerfis-
bundin stefnumótunarvinna með tilheyrandi breytingum í
skipulagi og innra starfi bankans. Sérstakt markaðs- og vöruþró-
unarsvið var m.a. sett á laggirnar og mörkuð stefna á þeim svið-
um sem kerfisbundið var fýlgt eftir. Það vaknaði áhugi á því að
búa til leikna auglýsingu sem þá hafði ekki verið mikið gert af
og Stuðmenn sömdu lagið „með á nótunum“ sem notað var í
auglýsinguna.
„Efnt var til víðtæks kynningarstarfs undir kjörorðunum
„nútíma banki“,“ segir Magnús. „Iðnaðarbankinn tók fýrstur
banka í notkun hraðbanka á árinu 1984 og skömmu síðar
kynnti hann velheppnaða reikninga eins og Bónusreikning og
Alreikning. Skilaboðin í þessu heildarátaki bankans voru síðan
kynnt með ímyndarauglýsingu sem gengið hefur undir heitinu
„með á nótunum“. Bankastjórinn í auglýsingunni sýnir þar af
sér nýja hlið og boðar í rauninni nýja tíma. Með þessu vildi
bankinn segja að hann væri fýrir viðskiptavinina og að eftir-
sóknarvert væri að vera í góðum málum fjármálalega séð og
textinn í auglýsingunni var:
Þeir uppskera ekkert sem halda að sér höndunum
og halda að allt getí farið úr böndunum.
En ég ætía að koma undir mig fóúmxun
og Iðnaðarbankinn er með á nótunum.
„Með auglýsingunni mátti segja að stigið væri nýtt skref sem
gaf til kynna að við værum að losna úr höftum,“ segir Magnús.
„Undirtektirnar á þessari auglýsingu fyrir sautján árum voru
mjög góðar enda skilar vel sú auglýsingaherferð, sem studd
er góðum undirbúningi starfsfólks og annarra, venjulega
árangri.“S!]
Grípandi lag getur verið 50% af góðri sjónvarpsauglýsingu.
87