Frjáls verslun - 01.11.2004, Blaðsíða 26
Peggy Helgason og Sigurður Helgason kynntust þegar þau voru samtíða við háskólanám í Norður-Karólínu. Þau gengu í hjóna-
band 25. ágúst 1973 og hafa því verið gift í 31 ár. FV-mynd: Geir Ólafsson
Kynntust í háskóla vestanhafs
Eiginkona Sigurðar Helgasonar er Peggy Helgason iðju-
þjálfi. Hún er bandarisk, en þau kynntust þegar þau voru
samtíða við háskólanám í Norður-Karólínu. Peggy er úr
því ríki og fara þau Sigurður þangað vestur í flestum sínum
fríum. Peggy er fædd 17. júlí árið 1950, en Sigurður 1. maí
árið 1946.
„Mér finnst nauðsynlegt að geta haft ákveðna fjarlægð frá
starfinu,“ segir Sigurður. Hann reynir líka að skapa sér stundir
hér heima sem hann á einn og með sjálfum sér. Eftir að hafa í
morgunsárið athugað stöðuna á Ameríkuvélunum og hvemig
dagurinn framundan hjá Flugleiðum lítur út, fer hann út að
ganga með hundinn, þar sem þau Peggy búa í Skeijafirðinum.
„Við búum þar eiginlega á milli flugbrauta en verðum lítið vör
við flugið nema að mér finnst mjög gott að heyra á morgnana
að Fokkeramir, sem em á leiðinni úti á land, séu á réttum
tíma,“ segir Sigurður sem segir að í raun taki starfið allan sinn
tíma og fá tækifæri séu til að sinna áhugamálum.
„Eg reyni að vera kominn heim úr vinnu einhvern tímann
á sjötta tímanum á kvöldin og fer þá aftur aðra gönguferð með
hundinn sem er mín líkamsrækt fyrir svo utan að við syndum
um helgar. Kvöldið fer síðan alltaf talsvert í vinnu, ég er mikið
í tölvunni að fylgjast með stöðunni auk þess sem ég les í viku
hverri íjölda alþjóðlegra tímarita um hvað helst sé að gerast hjá
flugfélögum og ferðaþjónustufyrirtækjum í heiminum," segir
Sigurður. Hann segist vera á endalausri 24ra tíma vakt við að
stýra Flugleiðum, þar séu heldur engin grið gefin.BD
26