Frjáls verslun - 01.11.2004, Side 98
Tengsl fyrirtækjanna, sem
við skoðuðum, við nýsköpunar-
umhverfið voru rannsökuð, með
það að markmiði að draga álykt-
anir út ffá því hvort þessi tengsl
gætu útskýrt hegðun fyrirtækj-
anna.
Þar sem fyrirtækin höfðu keypt
erlend fyrirtæki með rannsókna-
og þróunardeildum, þá hafði
þeim deildum í mörgum tilfellum
annaðhvort verið lokað eða
starfsemi þeirra skorin niður.
Munu þau fylgja mynstri erlendu
rannsóknanna? Án nokkurs vafa er hægt að álykta að
þau fimm fyrirtæki sem skoðuð voru, hafa fengið mikið út
úr þeim tengslum sem þau hafa byggt upp við helstu stoðir
íslenska nýsköpunarumhverfisins í gegnum tíðina. Eins
hafa þau fengið að stunda sína vinnu í friði hér á landi, fjarri
stórum samkeppnisaðilum, í umhverfi sem þau sjálf hafa
tekið virkan þátt í að móta.
Við teljum því að á meðan íslensku hátæknifyrirtækin ná
að uppfylla þau vaxtarmarkmið sem þau setja sér og á meðan
íslenska nýsköpunarumhverfið sér þeim fyrir því sem þau
þarfnast í sinni þróunarvinnu, þá muni meginstarfsemi þeirra
á sviði rannsókna og þróunar verða hér á landi.
En að teknu tilliti til þess að fyrirtækin muni vaxa áfram
á sama hraða og undanfarin ár, þá teljum við að í framtíðinni
verði íslenska nýsköpunarumhverfið of lítið fyrir þessi fyrir-
tæki. Astæður eru þær að ijármunir til nýsköpunar á íslandi
eru takmarkaðir og erfitt að réttlæta að
þeim sé beint í ákveðnar tæknigreinar
umfram aðrar í miklum mæli.
Sem dæmi má nefna að íslenskar rann-
sóknastofnanir eru einfaldlega of litlar
umfangs til að geta sinnt stórum verk-
efnum fyrir þessi fyrirtæki. Þeirra hlut-
verk er frekar að hjálpa einstaklingum og
smærri fyrirtækjum með ólíkar hugmyndir
úr ólíkum greinum að komast á fót.
Líklegt má hins vegar telja að íslensku hátæknifyrirtækin
muni þurfa á því að halda að starfa nálægt stórum rannsókna-
stofnunum sem geta sinnt þörfum þeirra. Við teljum að eftir-
spum fyrirtækjanna eftir rannsóknafólki geti orðið það mikil
að íslenska nýsköpunarumhverfið eigi erfitt með að uppfylla
þær þarfir þar sem oft er krafist mjög sérhæfðs starfsfólks til
rannsóknastarfanna.
Að lokum má ætla að það verði fyrirtækjunum nauðsyn-
legt, t.d. sökum aukinnar samkeppni á helstu mörkuðum
þeirra, að stunda meginrannsókna- og þróunarstarfsemi sína
í erlendum „nýsköpunarklasa".
Eins má telja líklegt að flutningur rannsókna- og þróunar-
starfsemi nær lykilmörkuðum verði óhjákvæmilegur í fram-
tíðinni til að stytta boðleiðir milli helstu viðskiptavina og
meginrannsókna- og þróunarstarfsemi fyrirtækjanna. SU
Umslagapökkunarvélar
Pappírsbrotvélar
Dl 200
Tveir ílagsbakkar fyrir bréfsefnið.
Bakki fyrir forbrotið efni.
Bakki fyrir umslögin.
Bakki fyrir hraðísetningu.
900 ísetningar á klukkustund.
Brýtur bréfið, setur í umslag
og lokar því.
Sjálfvirkt!
Notið tímann í annað þarfara
en að gera þetta í höndunum!
Sparar ótrúlega mikla
vinnu.
Sparar yfir 10 tíma í vinnu
fyrir hver 5,000 brot.
Afkastageta 8,400 brot á
klukkustund.
20 sinnum hraðvirkari en
mannshöndin.
Möguleiki á allt að 12
mismunandi brotum.
DF400
óö 1
I nútíma fyrirtækjarekstri þar sem
tíminn skiptir máli er þörf á
öflugum skrifstofutækjum.
Umslagapökkunarvélar og brot-
vélar spara mikinn tíma og vinnu
þegar senda þarf út póst.
Ctte C. Arnar ehf.
illit
^ftfp Pitney Bowes - 57 ár á Islandi
Ármúla 29- 108 Reykjavík
Sími: 588 4699 - fax: 588 4696
Vefsíða: oba.is - netfang: oba@oba.is
98