Frjáls verslun - 01.11.2004, Blaðsíða 21
Hagnaður Flugleiða (í mkri
2.611 2.682*
2002 2003 2004
* áætlun
-939
-1.212
Fjöldi starfsmanna
2.632
2.487
2.289
2000 2001 2002 2003
2000 2001 2002 2003 2004
höfðu ekki síst áhrif í fluginu. Nánast strax á fyrsta degi brugð-
ust Flugleiðamenn við aðstæðum með róttækum aðgerðum, en
vakið hefur athygli víða hve fljótt félagið náði að bregðast við
gjörbreyttum aðstæðum. Víða um lönd, svo sem í Bandaríkj-
unum, eru flugfélög eru ekki enn búin að vinna úr afleiðingum
þessa örlagaríka dags, og þekkt evrópsk félög eins og Swissair
og Sabina fóru í gjaldþrotaskipti.
,Á árinu 2001 vorum við að endurskoða leiðakerfið okkar
með það fyrir augum að styrkja okkur í flugi miili Skandinavíu
og Bandaríkjanna, en draga úr áherslunni á Mið-Evrópu. Við
vorum búin að gera hér ýmsar áætlanir í þessa veru sumarið
2001. Þessum áædunum gátum við hrint í framkvæmd með
mjög skömmum fyrirvara þegar þessir atburðir gerðust Þannig
skárum við niður nánast allt okkar vetrarflug til Mið-Evrópu og
fækkuðum ferðum í Bandaríkjaflugi um fjórðung. Héldum hins
vegar okkar striki í flugi hingað til lands og í markaðsstarfi og
því að kynna Island sem áhugaverðan áfangastað og með þvi að
færa sæti úr sölu í Norður-Atlantshafsflugi til sölu á ferðamanna-
markaðnum til Islands. Þetta skilaði tilætluðum árangri; við
komum mjög vel út úr árinu 2002 og árunum sem á eftir hafa
komið,“ segir Sigurður, sem telur að árangurinn sem náðist
við þessar erfiðu kringumstæður grundvallist ekki síst á því að
rekstur Flugleiða sé mjög sveigjanlegur.
„Þessi sveigjanleiki okkar er bein afleiðing af þeirri miklu
þekkingu í flugrekstri, ferðaþjónustu og alþjóðlegri markaðs-
setningu sem hefur verið byggð upp hér innanhúss undanfarinn
einn og hálfan áratug. Félagið hefur líka alltaf verið einkarekið,
ólíkt nær öllum evrópskum félögum, sem hafa verið og eru
mörg enn í ríkiseigu. Hér hefur því alltaf ríkt það viðhorf að
félagið verði að ná árangri upp á eigin spýtur. Vilji starfsmanna
til verka hefur afltaf verið mikill og kostnaður Flugleiða er með
þvi lægsta sem þekkist í alþjóðlegum llugrekstri"
Þurfum fleiri markhópa ferðamanna í dag má segja að
Flugleiðir komi við sögu á nánast öllum sviðum íslenskrar
ferðaþjónustu. Flugið er umsvifamesti þáttur starfseminnar, en
áætla má að Icelandair flytji um það ríflega helming allra ferða-
manna sem koma hingað til lands á ári hveiju. Fyrirtækið er
einnig umsvifamikið í hótelrekstri og má þar meðal annars nefna
Nordica hótel við Suðurlandsbraut í Reykjavík sem tekið var í
notkun fyrir rúmu ári. „Með byggingu þess erum við að komast
meira og betur inn á þennan svonefnda ráðstefnu- og hvataferða-
markað sem fer sífeflt stækkandi,“ segir Sigurður, en tekur þó
fram að stærstur hluti þeirra 360 þúsund ferðamanna sem koma
hingað til lands á ári hverju sé fólk sem vifl upplifa landið sjálft
og töfrandi náttúru þess.
„Ef auka á fjölda ferðamanna hingað til lands þarf að ná til
fleiri markhópa en hingað lil. Stærstu hópamir, sem komu
hingað fyrr á árum, voru Evrópumenn sem óku með rútu
hringinn í kringum landið - ellegar ungt háskólafólk í bakpoka-
ferðalögum. I dag er þetta hins vegar mikið breytt, nú gerist
það í æ ríkari mæli að hingað komi fólk sem skipuleggur sínar
ferðir sjálft, leigir sér bfl og gistir á Edduhótelunum. Það er þessi
markaður sem við horfum til og viljum stækka, og þá ekki síst
að fá hingað fjölskyldufólkið,“ segir Sigurður.
21