Frjáls verslun - 01.11.2004, Blaðsíða 50
Asthildur Skjaldardóttir býr ásamt Birgi Aðalsteinssyni á myndarbúi að Bakka á Kjalarnesi. í undirbúningi er að tengdasynirnir
komi að búrekstrinum og að liðlega tvöfalda mjólkurframleiðsluna.
MJOLKURFRAMLEIÐSLA AFTUR I REYKJAVIK:
Stefnt að verulegri framleiðsluaukningu
á eina kúabúinu á Kjalarnesi
Mjólkurframleiðsla lagðist af innan borgarmarka Reykja-
víkur í byijun áttunda áratugar síðustu aldar. Þá bjó að
Laugabóli við Engjaveg í Laugardal Gunnar G. Júliusson
sem var þó ekki með meiri mjólkuriramleiðslu undii' það síðasta
en það að hann fór með mjólkurbrúsann í strætó niður í Mjólkur-
stöð við Laugaveg 162, þar sem nú er Þjóðskjalasafn íslands. Nú
er aftur farið að framleiða mjólk innan borgamrarka Reykjavíkur
eftir að Kjalameshreppur sameinaðist höfuðborginni árið 1998.
A Bakka á Kjalamesi búa Asthildur Skjaldardóttir og Birgir
Aðalsteinsson góðu búi, en ársframleiðsla búsins er um 137
þúsund lítrar og meðalnyt um 5.400 litrar, eða 28 til 30 mjólkandi
kýr. Asíðustu árum hefur verið ráðist í umtalsverðar íramkvæmdir
og öll aðstaða bætt sem miðar að því að kaupa mjólkurkvóta og
auka framleiðsluna, en svona skref íyrir skref þar sem kvótaverð
er nú mjög hátt og margir halda þvi að sér höndunum í bili.
I undirbúningi er að tengdasynimir komi með í búrekstur-
inn, og segir Asthildur það m.a. gert til þess að þau geti þá leyst
hvert annað af, en þá þarf að stækka búið til þess að framfleyta
þeim sem að rekstrinum koma. Stefnt er að því að auka fram-
leiðsluna í 300 þúsund lítra, jörðin, ræktunin og húsakynnin bera
það vel, en byggt var við gamla flósið og ennfremur er þama
lausagönguflós og mjaltabás. Ekki hefur verið ráðist í kaup á
mjaltaþjóni (,,róbót“) í flósverkin, Asthildur telur það einfaldlega
ekki enn vera hagkvæma tjárfestingu.
Ásthildur segir að þau hafi keypt jörðina af ömmubræðrum
hennar, þar hafi hún verið í sveit en hún er fædd og uppalin í
Reykjavik. Sama ættin hefur búið á Bakka síðan 1863. Búskap-
inn hófu þau Ásthildur og Birgir með kaupum á jörðinni Selja-
tungu í Gaulveijabæjarhreppi þar sem þau bjuggu í 13 ár.
„Það vom geysileg félagsleg viðbrigði að flytja að austan
hingað á Kjalames, ekki síst vegna þess að þetta er eina
kúabúið á Kjalamesi í dag en það var kúabú í Stardal þegar
við komum hingað, en ekki lengur. Auðvitað er kostur að
búa svona nálægt Reykjavik en það kom mér á óvart hversu
miklu erfiðara var að eiga bam hér í framhaldsskóla en fyrir
austan. I Gaulveijabæjarhreppnum var skólabíll á morgnana og
heim aftur en hér em mjög stopular strætisvagnaferðir," segir
Ásthildur Skjaldardóttir.
- Er blandaður búskapur á undanhaldi og sérhæfing búa bar með
að aukast? ,Já, og eins fara búin enn stækkandi. Eg er hins
vegar ekki viss um að hérlendis verði í framtíðinni mörg vem-
lega stór bú vegna þess að þá þarf að treysta á aðkeypt vinnuafl,
mér einfaldlega hugnast ekki sú framtíðarsýn. Sérhæfing mun
einnig aukast að vissu marki, en auðvitað verða alltaf til blönduð
bú. Það er viss sveitarómantík fólgin í því að vera td. með kýr,
kindur og hesta, jafnvel fleiri skepnur, á sama bæ, en það er
kannski ekki að sama skapi hagkvæmt eða skynsamlegt.“H!]
50