Frjáls verslun - 01.11.2004, Blaðsíða 43
inn í hann. A5 bankanum stóðu félagar
1 VerslunarráSi íslands, Félagi stórkaup-
manna og Kaupmannasamtökum Islands.
Höfuðstöðvar hans voru í Bankastræti en
alls urðu útibúin 7, öll á suðvesturhorninu.
Verslunarbankinn lét til sín taka á sviði
tæknivæðingar í bankastarfi. Með tilkomu
hans jókst þjónusta við verslunar- og þjón-
ustufyrirtæki en auk þess var fjöldi einstakl-
inga í viðskiptum við bankann.
Þegar helstu atvinnugreinarnar höfðu
eignast sinn eigin banka fóru verkalýðs-
félögin að huga að stofnun sérstaks alþýðu-
banka sem ynni í þágu verkafólks. Fyrsta
skrefið var opnun Sparisjóðs alþýðu 29. apríl
1967. Alþýðubankinn hf. tók síðan til starfa
5. mars 1971 og yfirtók starfsemi spari-
sjóðsins með höfuðstöðvar á Laugavegi 31.
Flest urðu útibú bankans 5.
Alþýðusamband íslands og ýmis verka-
lýðsfélög áttu meirihluta í Alþýðubankanum
en markmið hans var að efla atvinnuþróun
og atvinnuöryggi launafólks sem og að
styðja menningarlega og félagslega starf-
semi verkalýðshreyfingarinnar.
Stærsti einkabankinn
Á árunum 1984 til 1987 urðu ýmsar
breytingar í frelsisátt í íslensku bankakerfi.
Stofnun útibúa varð frjáls, bankar voru ekki
bundnir við atvinnugrein og þeim var gefið frelsi til að ákveða þá þjónustu
sem þeir vildu bjóða.
Snemma árs 1989 hófst undirbúningur að sameiningu Alþýðubankans,
Iðnaðarbanka íslands, Verslunarbanka Islands og Útvegsbanka Islands
með kaupum þriggja fyrstnefndu á hlut ríkisins í Útvegsbankanum. I júní
var gengið frá kaupsamningi og með kaupunum urðu tímamót í fjár-
málalífi íslendinga. Tilgangurinn var að ná fram hagræðingu til að geta
veitt betri þjónustu.
Hinn nýi banki, íslandsbanki, tóktil starfa
3. janúar 1990 og var stærsti einkabanki
landsins með um 800 starfsmenn og rúm-
lega 30 útibú.
Samruni til sóknar
í upphafi árs 1998 kom Fjárfestingabanki
atvinnulífsins hf. - FBA - til sögunnar og
tók við starfsemi Fiskveiðasjóðs íslands,
Útflutningslánasjóðs, Iðnlánasjóðs og
Iðnþróunarsjóðs en sameining fjárfestingar-
lánasjóðanna í FBA var einn liðurinn í frelsis-
væðingu í bankakerfinu. Með stofnun bank-
ans átti m.a. að styrkja stoðir fjármála-
markaðarins og draga úr eignarhaldi ríkisins
á fjármálamarkaði, draga úr aðgreiningu
fjármálafyrirtækja eftir atvinnugreinum,
auka samkeppni og efla alþjóðlega þátttöku
á íslenskum fjármálamarkaði.
íslandsbanki hf. og FBA sameinuðust
formlega 2. júní árið 2000 og fékk hinn nýi
banki nafnið íslandsbanki—FBA hf. Næsta ár
var nafnið íslandsbanki tekið upp fyrir alla
starfsemi bankans. Starfsmenn hans voru
um 1.000.
íslandsbanki hafði rekið þróttmikinn við-
skiptabanka með trausta markaðshlutdeild
í þjónustu við einstaklinga og fyrirtæki. FBA
hafði hins vegar öðlast sterka stöðu með
sérhæfðri fjárfestingarbankaþjónustu við
sveitarfélög, fyrirtæki og aðila í íslensku efnahagslífi. Með samrunanum
varð til öflugt fyrirtæki á fjármálamarkaði og leiðandi afl í viðskiptalífinu.
Árið 2003 keypti bankinn Sjóvá-Almennar tryggingar hf. til að auka
enn þjónustu við viðskiptavini sína.
Árið 2004 var öld liðin frá opnun gamla fslandsbanka. Á þessum 100
árum hafa aðstæður f fjármálaheimi íslendinga gjörbreyst. En starfsemi
fslandsbanka hvilir á traustum grunni allra fyrirrennara sinna og byggir
á reynslu þeirra. H3
RÆTUR
ÍSLANDSBANKA
lOO ara
fjármálasaga
Út er komin bókin Rætur íslandsbanka.
100 ára fjármálasaga. Saga íslands-
banka nær aftur til ársins 1904
þegar gamli Íslandsbanki var opnaður.
í bókinni eru sex fræðigreinar eftir
sagnfræðinga og hagfræðinga og fimm
viðtöl við bankamenn, auk bankaannáls.
Bókin er 318 bls., ritstjóri Eggert Þór
Bernharðsson sagnfræðingur og útgef-
andi er íslandsbanki.
FBA og íslandsbanki sameinuðust í Íslandsbanka-FBA árið
2000. Forstjórar voru Bjarni Ármannsson og Valur Valsson.
Með samrunanum varð til stærsti banki á íslandi.
í stefnu íslandsbanka hefur verið lögð rík áhersla á að setja
viðskiptavininn í öndvegi og veita persónulega þjónustu.
43