Morgunn - 01.12.1963, Qupperneq 16
90
MORGUNN
mörg þau atvik, sem skýrt er frá, furðu lík þeim,, sem
segir frá í N. testamentinu og ýmsum trúarritum öðr-
um, svo að ástæða er til fyrir þá, sem halda, að svokall-
aðar kraftaverkasögur séu ekki annað en helgisögur og
ýkjur að taka það til rækilegrar íhugunar,, hvort ekki
sé kominn tími til að endurskoða þá afstöðu efnishyggj-
unnar og taka að gera sér aðra og andlegri lífsskoðun.
Taki menn að veita þessum hlutum athygli, þá munu
menn komast að raun um, að alls konar fyrirbrigði hafa
verið að gerast fram á þennan dag, sem eru hliðstæður
við sumt það sem ótrúlegast hefur þótt í trúarritunum.
Furðuleg bók.
New York Times segir um bókina A Life after Death
og höfund hennar: Dr. Harlow er maður með vísinda-
lega þjálfun. Hann virðist vera samvizkusamur maður,
sem lætur sér vera umhugað um, að segja sannleikann
og ekkert annað. Hann varast að taka í bók sína nokkuð
það, sem hugsanlegt er og skýra á náttúrlegan hátt.
Samt er hún troðfull af frásögnum, sem eru ævintýra-
legri en nokkuð það, sem unnt er að finna í nokkurri
undrasögu (science fiction) nútímans.
Höfundur bókarinnar segist hafa reynt að greina frá
sönnum atburðum eins og hann vissi réttast, en gagn-
vart slíkum staðreyndum verði menn að standa eins og
börn, sem þó reyna að vega og meta fyrirbrigðin á hlut-
lausan hátt. En hvernig sem hann velti þessum hlutum
fyrir sér, finni hann enga skýringu á þeim líklegri en
þá, að þau stafi frá framliðnum mönnum, og að líf sé
til eftir þetta líf.
Geraldine Cummins.
Eg hefi nú dvalið um hríð við bók dr. Harlows, en
þetta sem nú hefur verið sagt, er þó reyndar ekki ann-