Morgunn - 01.12.1963, Síða 21
Endurfæðing
★
Þegar dulsinnar segja frá reynslu sinni, sem er þeim
„veruleikur veruleikans“ þótt erfitt sé að lýsa fyrir öðr-
um, segja þeir hámark þeirrar reynslu hina miklu hug-
ljómun, þegar huldir dómar vitrast manninum, örlaga-
rásin verður þeim ljós og það sem áður var myrkri hjúp-
að, stendur þeim skyndilega í björtu ljósi.
Þessi reynsla er sameiginleg öllum dulsinnum allra
hinna æðri trúarbragða. Um þessa „innri reynslu,“ sem
staðfest er vitnisburðum ágætra manna á öllum öldum,
sem rituð mannkynssaga nær yfir, gildir hið fornhelga
orð, að „um andlega hluti verða andlegir menn að
dæma.“ Dulsinnar finna, að þeir eru að lýsa „hinu
ólýsanlega," að þeir eru að segja frá „hinu ósegjanlega."
Og þó segja þeir frá, þó lýsa þeir,, ef ske kynni að frá-
sögn þeirra gæti orðið öðrum mönnum leiðarljós að hin-
um mikla sannleika.
Og reynslan verður þeim endurfæðing, fæðing inn í
nýtt ljós, þeir öðlast nýtt horf við lífinu, nýja afstöðu.
Þeir verða fyrir reynslu sína nýir menn.
1 sumarhefti tímaritsins Light 1962, segir brezkur
menntamaður, R. H. Bulmer magister,. frá reynslu, sem
hann öðlaðist fyrir nokkrum árum og mjög er svipaðs
eðlis og reynsla dulsinna, er þeir hafa fært í letur. Árið
1950 veiktist hann hastarlega og fékk alvarlega lungna-
lömun, svo að hann lá í sjúkrahúsi í stállunga samfleytt
í 3 ár. Undir árslok 1955 var hann loks að fá fulla
heilsu. Þá var það, að hann varð fyrir þeirri reynslu,
er hér segir frá. Hann hafði fram að þeim tíma verið
í algerri óvissu um trúarefni, og reynslan kom honum