Morgunn - 01.12.1963, Blaðsíða 30
104
MORGUNN
saka nýlega söguna um Swarn Lata, sem átti heima í
Chhatarpur, — enn á Norður-Indlandi. Forstjóri þess-
arar sálvísindastofnunar segir frá þessu máli. Swarn
Lata er sögð hafa „munað tvær fyrri jarðvistir sínar.“
Hún lýsti húsi, sem hún kvaðst áður hafa átt heima í í
Katni, í 150 mílna fjarlægð frá núverandi heimili henn-
ar, og lýsti litnum á veggjunum. Tvennt var það, sem
hún gerði og ekki segir frá í fyrri fyrirbærum: Hún
söng Bengali-söng og dansaði Assamese-dans með at-
hyglisverðum tilbrigðum. Þeir sem frá fyrirbæri þessu
segja, telja ólíklegt að um svokallað dulminni hafi verið
að ræða,. að atvik, sem hún hafi einhvemtíma séð eða
heyrt, en verið búin að ,,gleyma,“ hafi þarna brotizt upp
úr undirvitund hennar. Hvorki munu kvikmyndir, er
hún hafði séð, né útvarpsefni, er hún hafði heyrt, geta
skýrt þetta. Frá því er ekki í skýrslum þessum um hana
sagt, hvort rannsakað hafi verið samband hennar við
æskufélaga, né rannsökuð tímarit og blöð eða myndir,
sem hún kann að hafa haft undir höndum. Oss er sagt,
að útilokað sé með öllu, að hún hafi með eðlilegum
hætti getað lært bengölsku, sem alls ekki er töluð á
heimaslóðum hennar. En sú staðreynd, að þama voru
menn, sem gátu staðfest, að hún talaði bengölsku í þessu
ástandi, sýnir, að til hafa verið þarna menn, sem það
tungumál skildu. Faðir hennar neitaði í byrjun, en ját-
aði að nokkru síðar, að hafa kynni af mönnum, sem
kunnu bengölsku. í skýrslunni er tekið fram, að fjöl-
skyldan, sem Swarn Lata kvaðst hafa verið gift inn í í
fyrra jarðlífi, var auðug fjölskylda og víðkunn, sem auð-
velt hefði verið fyrir hvern og einn að afla sér upplýs-
inga um.
Ég held því ekki fram, að þetta sé nægileg skýring á
öllu því, sem stúlkan sagði og sagði réttilega frá um
þetta „fyrra tengdafólk sitt,“ en hér hefði þurft að
rannsaka miklu betur óbeint samband stúlkunnar og
foreldra hennar við annað fólk, til þess að ekki yrði