Morgunn - 01.12.1963, Blaðsíða 39
MORGUNN
113
segist sjálfur þurfa að vera vel á verði gegn því, að
lofa sálan’annsóknamennina og vera um leið ósanngjarn
við spíritista.
Hann telur meginástæðu fordómanna vera þá, að
menn hafi á tilfinningunni, að eitthvað sé óheilbrigt við
spíritismann. „Vér megum samt ekki skilyrðislaust kalla
þessa tilfinningu fordóma, segir höf., — en vér megum
hinsvegar ekki samsinna þessari andúð án þess að gera
tilraun til að rannsaka hana og reyna að gera oss ljósa
grein fyrir henni, því að vel má vera að hún reynist þá
órökstudd með öllu.“
Ég tilfæri nú innan gæsalappa allt, sem ég tek orð-
rétt úr bók dr. Cleoburys.
„Það er vafalítið, að þeir sem aðhyllast beinlínis
drottinvald Biblíunnar, sem beygja beri sig fyrir, skoða
miðilsdáð transinn, með söguna af galdrakonunni í
Endor í baksýn. En vér, sem lítum á Biblíuna, sem sögu
sívaxandi opinberunnai’, gerum oss ljóst, að þessi gamla
saga, eins og hún er varðveitt í Ritningunni, er lituð
hugmyndum, sem vér erum ekki bundin við að aðhyllist.
Hinar fyrstu hugmyndir Forngrikkja og Hebrea um á-
stand framliðinna í Hades, eða Scheol, gefa enga sam-
stæða mynd. Frumstætt fólk hirðir ekki um slíkt. Menn
hugsuðu sér oft hina framliðnu lifa svo ömurlegu, skugga-
legu lífi, að eilífur svefn hlaut að vera blessuð lausnfrá
því. En menn trúðu að jafnvel í slíkum svefni væru
framliðnir ekki óhultir fyrir vondum mönnum á jörðu,
sem ónáðuðu þá og „kölluðu fram.“
— Upplýstir nútímamenn eiga bágt með að aðhyllast
þessar Hades-Csheol hugmyndir. Trúlausir menn eða efa-
gjarnir gefa allt málið frá sér, og kristnum mönnum er
ómögulegt að hugsa sér, að framliðnum mönnum geti
þótt órofinn svefn eftirsóknarverðasta markmiðið. En
fyrst og fremst hljóta Gyðingar og kristnir menn að
vita að löngu fyrir daga Krists höfðu gáfuðustu hugs-
uðir og göfugustu andar meðal Hebrea komið auga á
8
L