Morgunn - 01.12.1963, Síða 73
MORGUNN
147
sagnimar allar sennilegri. Ef öllu hefði skilyrðislaust
verið trúað, og engar efasemdir komizt að, væri upprisa
Krists ekki studd þeim vitnisburðum, sem raun er á.
Það var einmitt „Tómasareðli,“ eða m.ö.o. mannlegt eðli
lærisveinanna, sem gerir frásögur guðspjallanna svotrú-
verðugar, sem þær eru.
Af hverju sannfærðist þetta fólk? Það sannfærðist af
staðreyndum. Þegar það fór að gleymast, fór að verða
algengara í kristinni kirkju að tala um trú á þessahluti
og krefjast trúar. En þá fóru fleiri að slitna af seilinni
og segja: Ég get ekki trúað. Þú biður mig hér um að
gera það, sem mér er ekki unnt.
Þannig er það nú, en þannig var það ekki í upphafi.
Upprisan var frumkristninni blákalt þekkingaratriði. Það
sannast af því bezt, að á alvarlegri úrslitastund gengu
postularnir fram og sögðu hiklaust: Vér boðum það, sem
vér höfum heyrt og séð.
Á þessum grundvelli einum var postulunum stætt með
boðskap um ódauðleika og annað líf.
Þetta var engum ljósara en Páli postula. Þessvegna
elskaði hann og virti andagáfumar, þessvegna lágu hon-
um í svo miklu rúmi þau skyndileiftur frá ójarðneskum
heimi, sem menn urðu varir við í söfnuðum hans. Hann
sannfærðist sjálfur af vitrun, sem hann fékk. Og hann
lifði alla ævi síðan á þeim undursamlega krafti, sem
vitrunin stóra veitti honum, og á eftir henni virðast
margar aðrar vitranir hafa farið, að því er Postulasög-
unni segist frá.
Þetta hefir mörgum hinna beztu spíritista og sálar-
rannsóknamanna verið ljóst. Þessvegna hafa þeir lagt
svo mikið kapp á að afla sönnunargagna fyrir fram-
haldslífi. Og upp af slíkri viðleitni er félag vort orðið
til. — Þessvegna er hlutverk þess mikið og skyldurnar
þungar, sem það bindur oss meðlimum sínum.
Hver eru þessi sönnunargögn? Hvernig verðaþaumet-
in?
L