Morgunn


Morgunn - 01.12.1969, Blaðsíða 3

Morgunn - 01.12.1969, Blaðsíða 3
MORGUNN 85 með hverjum deginum, skýrari og skýrari viðurkenning þess, að allir menn eigi heimting á skilyrðunum fyrir þeim andlega og líkamlega þroska, sem þeim er áskapaður í þessu lífi. Miklar blóðsúthellingar og aðrar hörmungar hefur það kostað, hvað örðugt mönnum hefur veitt að láta sér skiljast þetta. Enginn veit, hvað eftir kann að vera af þeirri sáru reynslu mannanna. En víst er um það, að aldrei hefur þessi hugsjón verið jafn björt og nú. Nokkuð líkt er um þá hugsjón, sem í mínum augum er mikilvægust og Morgni er einkum ætlað að halda á lofti — sambandið við annan, æðri heim. Sú hugsjón er mikilvæg- ust allra hugsjóna í mínum augum fyrir þá sök, að þegar hún verður orðin veruleg eign þjóðanna, þá hlýtur hún að ýta öllum öðrum fögrum og nytsömum hugsjónum mann- kynsins lengra áfram en nokkur fær nú gert sér í hugar- lund. Þegar mönnunum verður það ljóst af reynsluþekkingu, að þetta líf er framar öllu öðru undirbúningur undir annað líf, þá eru fengin skilyrði fyrir verulega traustum framför- um. Þá verður hvötin rík til þess að sýna öðrum mönnum góðgirni og leggja stund á réttlæti. Fyrir þessari hugsjón hefur mannkynið órað, að því er virðist síðan er vér höfum nokkrar sögur af því, og allir trúarbragðahöfundar hafa boðað hana. En venjulegast hefur glampinn af henni verið meira en daufur í margs konar villumyrkri. Nú er dagurinn runninn. Þrátt fyrir allt og allt eru þetta óumræðilega merkilegir og góðir tímar. Fleiri mannssálir en nokkru sinni áður, sjá nú glöggt margar af dýrmætustu hugsjónum mannsandans. Og ekki sízt þá hugsjónina, sem eg tel mikilvægasta. Óhætt er að fullyrða, að þeir eru nú margfalt fleiri en fyrir örfá- um árum, sem hafa komið auga á hana og lært að treysta henni og unna henni, af því að þeir hafa fengið að vita, að hún er sannreynd — enda má segja, að hlið annars heims hafi opnazt með dásamlegum hætti fyrir mönnum á tveim síðustu mannsöldrum. Bönd hinna og annara villukenninga eru að hrökkva í sundur. Mennirnir eru milljónum saman
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.