Morgunn - 01.12.1969, Blaðsíða 34
lltí
MORGUNN
hringir til mín og segir, að nú sé verið að bjóða upp altaris-
töflu Kjarvals. Ég spyr hann hve hátt boð sé komið í hana.
Hann nefnir upphæðina, mig minnir 300 eða 400 krónur.
Ég bið hann þá að tvöfalda þá upphæð, ef taflan sé þá sleg-
in mér þegar í stað, og bið hann svo að geyma hana fyrir mig
þangað til ég sæki hana og færi honum gjaldið. Þetta erindi
rækti kirkjubóndinn dyggilega, og ég varð eigandi altaris-
töflunnar. En þá var varla sjón að sjá hana. Hafði hún feng-
ið á sig ljótar málningarklessur af kirkjuveggnum, en samt
sem áður hengdi ég hana upp á vegg í stofunni hjá mér.
Nokkru eftir að seinni heimsstyrjöldinni lauk, fór Skúli
prófessor Guðjónsson að venja komur sínar til Islands í sum-
arleyfi sínu og dvaldist þá hjá mér.
Við skoðuðum þá oft altaristöflu Kjarvals og hörmuðum
það hve illa hún var útleikin.
Þá segir Skúli eitt sinn við mig, að hann þekki menn í
Danmörku, sem geri við gömul málverk, og hvort ég vildi
ekki reyna það. Ég gaf fá svör við því í fyrstu, en þó fór svo,
að Skúli fór með töfluna til Danmerkur. Seinna skrifaði
hann mér og sagði, að viðgerðin myndi kosta 2—300 krónur
danskar. Þvi bréfi svaraði ég ekki, og Skúli kom ekki til Is-
lands eftir það. Um áramótin 1954—55 var ég staddur í
Danmörku, en mundi þá ekkert eftir altaristöflunni. Og
hinn 25. janúar 1955 andaðist Skúli prófessor.
Ég skrifaði nú ekkju prófessorsins, sagði henni frá mynd-
inni og bað hana um að reyna að hafa upp á henni. Hún
svaraði aftur, að hún vissi ekkert um þessa mynd. Fóru síð-
an mörg bréf okkar á milli út af þessu. M. a. bað ég hana
um að láta leita vel í nýja Hygienisk Institut og gamla Hy-
gienisk Institut í Árósum, og eins heima hjá sér. 1 einu bréfi
sínu skýrði hún mér frá því, að þegar leit átti að hefjast í
„gamla Institutinu", þá hafi menn verið að rífa húsið. Leizt
mér þá ekki á blikuna og þótti ósýnt að ég myndi nokkurn
tíma sjá málverkið, ef það hefði verið geymt þar. En frúin
var óþreytandi í því að reyna að hafa upp á málverkinu og
lét leita alls staðar, hátt og lágt, frá efstu loftum og niður í