Morgunn


Morgunn - 01.12.1969, Blaðsíða 43

Morgunn - 01.12.1969, Blaðsíða 43
MORGUNN 123 að flykkjast um búðirnar og troðast inn í þær. Allir kepp- ast um að kaupa þar jólin, á meðan nokkur eyrir er eftir í vösunum. Sumir fá dýrustu gersemarnar með afborgunum og þykjast með því hafa himin höndum tekið — þangað til gjalddaginn kemur. Eg er ekki að lasta þetta beinlínis. Þessi kaup eru oftast af góðum hug gerð og ætluð til þess að gleðja sig, vini sína og kunningja á jólahátíðinni. En hjá æði mörg- um fer þetta þó út í heimskulegar öfgar. Og vel mega menn muna það, að þetta getur aldrei orðið nema umgjörð um sjálfa hátíðina, að vísu glæsileg umgjörð, þar sem nægir pen- ingar eru fyrir hendi, en umgjörð, sem verður ömurlega tóm, ef sjálfan jólafögnuðinn, jólahelgina og jólasálina, ef ég mætti orða það svo, vantar í þá umgjörð á heimilunum. Flestir munu vera nokkurn veginn sammála um það, að í okkur búi einhver andi eða sál, þótt skoðanir skiptist um eðli hennar, og að hinn sýnilegi líkami sé einskonar umgjörð utan um hana. Sumir hugsa öllu meira um líkamann, viðhald hans, fegrun og það, hverju hann skuli klæðast, svo bezt fari á. Aðrir telja sálina öllu meira virði og trúa því jafnvel, að það sé hún, en ekki þessi líkami hrörnun og dauða ofur- seldur, sem sé hinn raunverulegi maður, og að hún eigi fyrir liöndum áframhaldandi líf og þroska eftir að líkaminn hef- ur verið lagður í moldu. Og einhvern veginn finnst okkur, að sálarlaus líkami sé ekki mjög mikils vii'ði, fremur en um- gerð, sem engin mynd er í. Ég skal ekki fara lengra út í þessa sálma hér, enda þótt ég telji, að fátt skipti okkur öli í raun og veru meira máli, en að vita sönn og rétt skil á því, hvort þessi líkami er umgerð um ekki neitt, ef svo mætti segja, eða þar dvelur lifandi sál, sem á eilift líf og eilífa þroskamöguleika fyrir höndum. Ég fyrir mitt leyti, er ekki aðeins sannfærður um, að við öll höfum slíka sál. Ég er einnig sannfærður um það, að allir hlutir þurfi með einhverjum hætti að hafa sál, ef þeir eiga að geta orðið okkur, hverju um sig, einhvers virði og veitt okk- ur hamingju, sem varir stundinni lengur. Skáldið gefur ljóð- inu sái. Án hennar er það hvorki pappírsins né prentsvert-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.