Morgunn - 01.12.1969, Qupperneq 3
MORGUNN
85
með hverjum deginum, skýrari og skýrari viðurkenning
þess, að allir menn eigi heimting á skilyrðunum fyrir þeim
andlega og líkamlega þroska, sem þeim er áskapaður í þessu
lífi. Miklar blóðsúthellingar og aðrar hörmungar hefur það
kostað, hvað örðugt mönnum hefur veitt að láta sér skiljast
þetta. Enginn veit, hvað eftir kann að vera af þeirri sáru
reynslu mannanna. En víst er um það, að aldrei hefur þessi
hugsjón verið jafn björt og nú.
Nokkuð líkt er um þá hugsjón, sem í mínum augum er
mikilvægust og Morgni er einkum ætlað að halda á lofti —
sambandið við annan, æðri heim. Sú hugsjón er mikilvæg-
ust allra hugsjóna í mínum augum fyrir þá sök, að þegar
hún verður orðin veruleg eign þjóðanna, þá hlýtur hún að
ýta öllum öðrum fögrum og nytsömum hugsjónum mann-
kynsins lengra áfram en nokkur fær nú gert sér í hugar-
lund. Þegar mönnunum verður það ljóst af reynsluþekkingu,
að þetta líf er framar öllu öðru undirbúningur undir annað
líf, þá eru fengin skilyrði fyrir verulega traustum framför-
um. Þá verður hvötin rík til þess að sýna öðrum mönnum
góðgirni og leggja stund á réttlæti. Fyrir þessari hugsjón
hefur mannkynið órað, að því er virðist síðan er vér höfum
nokkrar sögur af því, og allir trúarbragðahöfundar hafa
boðað hana. En venjulegast hefur glampinn af henni verið
meira en daufur í margs konar villumyrkri. Nú er dagurinn
runninn.
Þrátt fyrir allt og allt eru þetta óumræðilega merkilegir
og góðir tímar. Fleiri mannssálir en nokkru sinni áður, sjá
nú glöggt margar af dýrmætustu hugsjónum mannsandans.
Og ekki sízt þá hugsjónina, sem eg tel mikilvægasta. Óhætt
er að fullyrða, að þeir eru nú margfalt fleiri en fyrir örfá-
um árum, sem hafa komið auga á hana og lært að treysta
henni og unna henni, af því að þeir hafa fengið að vita, að
hún er sannreynd — enda má segja, að hlið annars heims
hafi opnazt með dásamlegum hætti fyrir mönnum á tveim
síðustu mannsöldrum. Bönd hinna og annara villukenninga
eru að hrökkva í sundur. Mennirnir eru milljónum saman