Morgunn


Morgunn - 01.12.1969, Side 15

Morgunn - 01.12.1969, Side 15
MORGUNN 97 I þriðja lagi: Að afla raunsanninda og þekkingar um sam- band okkar mannanna á meðan við enn dveljumst í jarðvist- inni við þá sem horfnir eru af þessum heimi yfir á næsta svið mannlegrar tilveru og samband þeirra við okkur. 1 fjórða lagi: Að leitast við að afla þekkingar um það, hversu háttað muni vera tilvist og iífi mannsins á næsta til- verustigi og eðlisháttum þeirrar heimsvistar, sem við menn- irnir eigum í vændum að lokinni jarðvist okkar. Allar þessar spurningar hafa þráfaldlega leitað á manns- hugann frá örófi alda. Mennirnir hafa sífeilt verið að brjóta heilann um fyrirbæri og eðlisháttu anda síns og innri ver- undar (t. d. draumlíf og hugboð). Allt frá því upphafi að mennirnir gerðu sér grein fyrir sjálfstæðri tilvist sinni á þessari jörð hafa þeir verið að sjá og hlusta inn á önnur svið tilverunnar. Allir þeir menn, vís- indamenn jafnt og aðrir, sem í hyggju sinni og áhugaefnum eru alfarið efnisbundnir og kalla allt þetta yfirskilvitlegt og ekki vert umhugsunar né rannsókna, eru enn ekki komnir á það stig að gera vísindalegan greinarmun efnis og anda. Orðið „yfirskilvitlegt“ á tungu þessara manna merkir það allt sem skilningarvit líkama hversdagslegra manna fá ekki numið eða greint. Raunar sanna vísindin það æ betur með hverjum deginum sem líður hversu mjög skilningarvitum mannslíkamans eru takmörk sett. Eigi að síður berja efnishyggjumennirnir höfðinu við steininn. Af þessum ástæðum er það staðreynd, að enda þótt ráðgáta dulrænna fyrirbæra hafi verið mönn- um hugstætt og hugarhaldið viðfangsefni í þjóðtrú og þjóð- sögum allt frá því er þeir tóku að segja sögu og rita, á hinn vísindalegi spíritismi á Vesturlöndum aðeins rúmt aldar- skeið að baki. Áður en lengra er haldið langar mig til að við leiðum hug- ann stutta stund að dultrú íslenzku þjóðarinnar, sem gengur sem rauður þráður í gegnum tilveru hennar frá fyrstu tím- um íslandsbyggðar. Fyrstu íbúar landsins, írsku einsetumennimir sem kall-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.