Morgunn


Morgunn - 01.12.1969, Page 26

Morgunn - 01.12.1969, Page 26
108 MORGUNN Síðustu boðin, sem Fletcher flutti frú Houdini frá manni hennar, voru á þessa leið: „Segðu það öllum heimi, að Harry Houdini lifi og vilji sanna þá staðreynd, ekki einu sinni, heldur ótal sinnum. Mér var það fullkomin alvara, að reyna að afsanna að til væri líf eftir dauðann, enda þótt ég beitti til þess ýmsum brögðum. En mér fannst rétt að gera það, sökum þess að ég var sannfærður um, að samband við framliðna væri blekk- ing ein. En nú er mér það jafnmikil alvara, að koma boðum til að leiðrétta villu mína. Segðu öllum, sem ég kann ranglega að hafa svipt ódauðleikatrúnni, að öðlast þær vonir á ný og lifa framvegis í þeirri vissu, að lífið heldur áfram eftir líkams- dauðann. Þetta er boðskapur minn til allra manna, boð, sem konan mín hefur fengið með aðstoð miðilsins, sem var tækið til að koma þeim til hennar“. Vegna blaðaskrifa um þetta mál kaus frú Houdini að gefa vottfesta yfirlýsingu og birta hana opinberlega, og var hún þannig: „Án þess að taka tillit til nokkurra fullyrðinga um hið gagnstæða, óska ég að lýsa því yfir, að þau skilaboð í heild og þeirri röð, sem fyrirfram var ákveðin og ég hef fengið frá Arthur Ford, eru þau réttu skilaboð, sem Houdini og ég höfðum áður komið okkur saman um. — Beatrice Houdini“. Þeir atburðir, sem hér hefur lauslega verið sagt frá, munu ávallt teljast meðal hinna merkustu sannana um tilvist fram- liðinna manna og þá möguleika, sem traust miðilssamband gefur. Árið 1916 kom út í Bandaríkjunum bók, sem séra Sveinn Víkingur hefur þýtt á íslenzku og nefnist Dulskynjanir og dulreynsla, eftir dr. Louise Rhine. 1 henni er sagt frá mjög merkilegu vísindastarfi próf. dr. Rhine við Duke-háskólann í Bandaríkjunum, en bókin er skrifuð af konu hans. 1 formála fyrir þýðingu sinni á bókinni segir séra Sveinn Víkingur á þessa leið:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.