Morgunn


Morgunn - 01.12.1969, Page 41

Morgunn - 01.12.1969, Page 41
MORGUNN 123 að flykkjast um búðirnar og troðast inn í þær. Allir kepp- ast um að kaupa þar jólin, á meðan nokkur eyrir er eftir í vösunum. Sumir fá dýrustu gersemarnar með afborgunum og þykjast með því hafa himin höndum tekið — þangað til gjalddaginn kemur. Ég er ekki að lasta þetta beinlínis. Þessi kaup eru oftast af góðum hug gerð og ætluð til þess að gleðja sig, vini sína og kunningja á jólahátíðinni. En hjá æði mörg- um fer þetta þó út í heimskulegar öfgar. Og vel mega menn muna það, að þetta getur aldrei orðið nema umgjörð um sjálfa hátíðina, að vísu glæsileg umgjörð, þar sem nægir pen- ingar eru fyrir hendi, en umgjörð, sem verður ömurlega tóm, ef sjálfan jólafögnuðinn, jólahelgina og jólasálina, ef ég mætti orða það svo, vantar í þá umgjörð á heimilunum. Flestir munu vera nokkurn veginn sammála um það, að í okkur búi einhver andi eða sál, þótt skoðanir skiptist um eðli hennar, og að hinn sýnilegi líkami sé einskonar umgjörð utan um hana. Sumir hugsa öllu meira um líkamann, viðhald hans, fegrun og það, hverju hann skuli klæðast, svo bezt fari á. Aðrir telja sálina öllu meira virði og trúa því jafnvel, að það sé hún, en ekki þessi líkami hrörnun og dauða ofur- seldur, sem sé hinn raunverulegi maður, og að hún eigi fyrir höndum áframhaldandi líf og þroska eftir að líkaminn hef- ur verið lagður í moldu. Og einhvern veginn finnst okkur, að sálarlaus líkami sé ekki mjög mikils virði, fremur en um- gerð, sem engin mynd er í. Ég skal ekki fara lengra út í þessa sálma hér, enda þótt ég teiji, að fátt skipti okkur öll í raun og veru meira máli, en að vita sönn og rétt skil á því, hvort þessi líkami er umgerð um ekki neitt, ef svo mætti segja, eða þar dvelur lifandi sál, sem á eilíft líf og eilífa þroskamöguleika fyrir höndum. Ég fyrir mitt leyti, er ekki aðeins sannfærður um, að við öll höfum slíka sál. Ég er einnig sannfærður um það, að allir hlutir þurfi með einhverjum hætti að hafa sál, ef þeir eiga að geta orðið okkur, hverju um sig, einhvers virði og veitt okk- ur hamingju, sem varir stundinni lengur. Skáldið gefur ljóð- inu sál. Án hennar er það hvorki pappírsins né prentsvert- L
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.