Morgunn


Morgunn - 01.12.1969, Page 59

Morgunn - 01.12.1969, Page 59
MORGUNN 139 verið upp í rúðugötin; ég var í frambaðstofunni og Jóhanna, og hélt hún á barni á fyrsta ári; en þegar Ragnheiður hefur þvegið gólfið, kom krakki inn í baðstofuna, sem hafði hönd á treflinum, og var hann þá skorinn eða klipptur sundur í þrjá jafnstóra parta og alveg þvert yfir. Jóhanna segir hann hafi áreiðanlega verið heill, þegar hún hafi lagt hann fram fyrir, en eftir það horfði ég oftast á Ragnheiði, enda hefur þetta ekki verið nema svo sem 10 mínútur. Ég mæltist til þess við Aðalstein, að hann skryppi eða sendi að Dal, ef þeir bræður þar vildu koma að Hvammi. Aðalsteinn var svo að búa sig af stað og kom inn í frambað- stofu og settist þar á rúm Ragnheiðar til að hafa skóskipti. Með honum kom inn Árni Benediktsson frá Hallgilsstöðum. Árni settist á rúmgaflinn, en ég stóð upp við skattholið, sem var rétt við rúmgaflinn; kastaði þá Árni húfu sinni ofan við Aðalstein og hafði við orð um, að máske hefði það gaman af að skera húfuna, eins og netið hans Hjartar; fórum við svo að skrafa meðan Aðalsteinn hafði skóskiptin, og stóð það á nokkrum mínútum; stóð svo Aðalsteinn á fætur og gekk fram; ætlar þá Árni að taka húfuna, en finnur ekki. Máske hefur Aðalsteinn tekið hana í misgripum, sagði ég. Fór þá Árni á eftir Aðalsteini, en hann hafði sína húfu. Ég var kyrr á sama stað, svo enginn gat komið að rúminu svo að ég ekki sæi. Árni fór svo að leita aftur, en fann ekki húf- una; fór hann svo húfulaus upp í efri bæinn að finna Arn- grím, og kom svo aftur eftir litla stund; sat ég þá í húsinu ásamt Jóhönnu og Ragnheiði. „Hafið þið fundið húfuna mína?“ spurði Árni um leið og hann leit inn í húsið til okkar. ,,Nei“, sagði ég, „það hefur ekki verið leitað síðan“. „Má- ske hún sé á sama stað“, segir Árni og grípur húfuna, er þá lá ofan á rúminu, og var þá skorin sundur frá hnakka að skyggni. Það, sem mig undrar mest, er, hvernig húfan hvarf af rúminu, af því við Árni vorum þar báðir og urðum ekki varir við að nokkur maður kæmi að rúminu nema Aðal- steinn, sem engum dettur í hug að tortryggja. Þennan sama dag, hvort það var fyrr en það, sem nú 4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.