Morgunn


Morgunn - 01.12.1969, Síða 60

Morgunn - 01.12.1969, Síða 60
140 MORGUNN hefur verið talið, eða síðar, gerir ekki til, sat ég í húsinu — svo nefni ég alltaf þessi 2 stafngólf afþiljuðu í enda baðstof- unnar — og hafði þá um langa stund ekkert borið við. Þær sátu þar hjá mér Jóhanna og Ragnheiður, og ætlaði ég að ganga út; hafði þá Ragnheiður tekið við barninu og stóð við húsdyrnar, en Jóhanna fór á undan mér fram fyrir dymar, og um leið og ég hafði stigið tvö fet fram fyrir dyrnar, kem- ur loftþyngdarmælir, er hékk á nagla á stafnþilinu yfir hjónarúminu, í gólfið við fætur mér; mun það vera um 5 álnir frá naglanum, er það hékk á. Ragnheiður stóð á sama stað með barnið á hægri handlegg, en enginn annar var í húsinu (ég tel ekki sjúkling, sem hafði þá breitt yfirsæng yfir höfuð sér). Loftþyngdarmælirinn brotnaði dálítið; var hann svo og klukkan borið upp í efri bæinn; fór ég einnig uppeftir og stanzaði þar um tíma. Þegar ég kom aftur niður í bæinn, voru þeir staddir þar Pétur bóndi Metúsalemsson á Hallgilsstöðum og Árni, sem fyrr er nefndur; hafði þá Pét- ur séð snældu, er var undir sperru hátt uppi í baðstofu, kast- ast á gólfið; líka sá hann tvinnakefli kastað, án þess hann gæti séð nokkurn mann í sambandi við það. — Okkur Pétri var svo fært kaffi, og meðan við drukkum það, valt um skattholið í frambaðstofunni; iitum við báðir jafnt fram fyrir og var þá enginn maður þar, en inn kom Árni, hafði hann verið í göngum miðjum, er hann heyrði skellinn. Ég skal taka það fram, að ég hafði skorðað skattholið litlu áð- ur, því gólfið undir því var dálítið óslétt, og það gerði ég alltaf í hvert skipti, er það var reist við; samt var gólfið ekki svo óslétt eða lélegt, að hægt væri að koma á það nokkru verulegu róti, því siður að það (skattholið) ytli um, þó það væri ekki skorðað, nema maður tæki allfast í það. Hlóðarsteinum, sem þó eru allþungir, var nú velt fram á gólfið, og lágu eldglæðurnar um gólfið, en ekki kom ég að fyrr en þetta var búið; líka var kastað ýmsu: glerbrotum, svarðköggli, skeifu o. fl., en ekki gerði þetta skaða. Brot- inn var þó botn úr nýlegum potti; hann var í búrinu þannig brotinn, en ekki sá ég eða heyrði, þegar það skeði.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.