Morgunn - 01.12.1977, Page 61
DULSICYNJANIR
139
nefndist hún Flogaveiki og sálrœnir fylgikvillar hennar.
Greinin birtist síðar í brezka læknatímaritinu í marz 1955 og
hlaut mikið lof ritstjórans.
Það var með þennan starfsgrundvöll að baki, sem hún las
bókina um Edgar Cayce. Hún var því einkar vel undir það
búin að fjalla um Edgar Cayce frá sjónarmiði sérþekkingar
sinnar- Um það kemst hún m. a. svo að orði í bók sinni:
„Ögerlegt var að skilgreina hann sem tauga- eða geðsjúkling,
og varla gat hann heldnr talist „nonnal“ í venjulegri merk-
ingu þess orðs. En staðreyndimar töluðu sínu máli. f bókinni
var að vísu ýmislegt, sem ég gat ekki fallist á, en hins vegar
var þar einnig að finna fjölmargar vottfestar sannanir fyrir
því, að Edgar Cayce hafði hæfileika til að bera, sem sálvís-
indi nútímans gátu ekki skýrt.
Hann gat lagt sig niður á legubekk, látið sig síðan falla i
eins konar dásvefn og i þvi ástandi athugað og greint frá ein-
staklingi í mörg hundruð mílna fjarlægð. Þær persónur, sem
Cayce þannig skilgreindi voru honum í flestum tilvikum ger-
samlega ókunnai og vissi hann ekkert um þær annað en nafn
þeirra og dvalarstað.
Þannig lýsti hann herbergi því, sem ákveðin persóna dvaldi
i, útliti hennar og klæðaburði, skapgerðareinkennum og lik-
amsástandi og gat þá einnig greint frá sjúkum likamshlutum
og ástandi þeirra mjög nákvæmlega. ítarlegar vottfestar sann-
anir staðfestu þessar athuganir Cayces, sem liann framkvæmdi
meðan hann lá kyrr á legubekknum og skýrði frá reynslu
sinni með fullkomlega eðlilegri rödd.
í vökuástandi vitraðist Cayce einnig oft ýmislegt, sem átti
eftir að gerast. og sannaðist það jafnan síðar, þegar atburð-
irnir áttu sér stað. T bókinni var líka sagt frá ýmsum öðrum
undraverðum hæfileikum Cayces, sem hann beitti í vöku
t. d. þeirri gáfu að geta séð orkusvið kringum fólk og dýr.
f stuttu máli sagt var bókin hrein ögrun við öll min sjónar-
mið, sem reist voru á grundvelli læknisfræði og vísinda. En
eins og áður er sagt vissi ég talsvert um heila mannsins og
taugakerfi og afleiðingar flogaveiki og heilaskemmda. En fyrir-