Morgunn


Morgunn - 01.12.1977, Side 67

Morgunn - 01.12.1977, Side 67
duIjSkynjanir 145 hvernig þessir hæfileikar bezt geta komið mannkyninu að gagni með samstarfi sálræns fólks og lærðra manna. Það er mér því sérstakt fagnaðarefni, að vísindamaðurinn dr. Shafica Karagulla skuli nú hafa látið hendur standa fram úr ermum einmitt í þessum efnum. Þetta samstarf þarf að aukast og dafna öllu mannkyni til blessunar. Hugsanaflutn- ingur er nú almennt viðurkenndur sem vísindaleg sannreynd. Það fékkst nefnilega snemma nægilegt fé til nauðsynlegra rannsókna í þeim efnum, þegar stórveldunum varð ljóst að þessi hæfileiki hefur stórkostlega hernaðarþýðingu. Það skortir aldrei fé til hernaðarþarfa, eins og allir vita. En við skulum vona i lengstu lög, að sálrænum hæfileikum verði aldrei beitt í þágu styrjalda eða öðrum til bölvunar. Hið síðarnefnda hefur að vísu verið og er gert, en sá sem misnotar þannig hæfileika til góðs skapar sér ömurleg örlög. Ég geri ráð fyrir að ýmsum hlustendum mínum hafi fund- ist frásagnir í síðasta erindi mínu um uppskurði með berum höndum í ótrúlegasta lagi. 1 því sambandi vil ég aðeins taka fram, að ég hef sjálfur séð tvær kvikmyndir í litum, af upp- skurðum Antonios Agpaoa á Filippseyjum, sem teknar hafa verið af læknum Nú nýlega hringdi Pétur Sigurðsson alþingis- maður til min og sýndi mér þá vinsemd að bjóða mér að sjá prufusýningu í Laugarásbiói á langri kvikmynd af þessum uppskurðum, sem tveir þýzkir læknar hafa tekið og skilst mér að kvikmynd þessi verði sýnd í þessu kvikmyndahúsi fyrir almenning á næstunni, ef sýnmgar eru þá ekki þegar hafnar á henni, þegar þessu er útvarpað. Veitist hér gott tækifæri fyrir þá sem erfitt eiga með að trúa frásögnum minum, að skoða þetta með eigin augum. Sjón er sögu ríkari. Landnám íslands fór fram án blóðsúthellinga. Á Islandi hafa aldrei verið háðar stórorustur. fslendingar hafa alist upp í afskekktum sveitum í faðmi náttúrunnar. Allt liefur þetta sín áhrif á andlegt andrúmsloft landsins okkar. Kárma lands- ins er óvenju hreint. Það er því eðlilegt, að hér séu góð skil-

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.