Morgunn - 01.12.1977, Page 77
I STUTTU MALI
155
sem áður fyrir löngu kom iit í bókarformi, kom mér til hug-
ar að nauðsyn væri að endurprenta smám saman veigamestu
greinar og fyrirlestra Einars og Haralds, Ragnars E., Einars
Lofts. o. fl., ásamt þýddum ritgerðum -— í Morgni. Tulkun
þessara manna verður vart náð af nýjum höfundum um sinn.
Eg held, að þetta mundi auka eflirsókn eftir Morgni. Auk
þess mætti fá leyfi til að birta eina og eina prédikun Har-
alds, úr safni lians Árin og eilífðin. Mér virðist frjálslyndi
þverra meðal yngri kennimanna undir væng núverandi bisk-
ups, svo að hefja verður sókn, einkum fyrir hönd spiritism-
ans. Kennimönnum er nú smeygt með brögðum eða sniðugri
slægð, einum og einum, inn í laus prestaköll, eftir að hafa
verið áður settir í slípivélina hans hr. Sigurbjarnar. Frétst
hefur, að þetta sé undirbúningur undir næstu biskupskosn-
ingar. Þótt málefnið sjálft, réttur skilningur á lífi eftir látins
dag hér á jörðu, þá þarf til starfsins menn, og það er ekki
sama hvernig með þá er farið, ef rata eiga veginn og öðlast
að vita að ljós er til. Þvi verður að vera fræðslu- og litbreiðslu-
starfsemi með góðum fjölmiðli.
Sigurður Draumland.
Svnr: Morgunn þakkar Sigurði Draumland bréfið. — En
þareð tímaritið kemur út aðeins tvisvar á ári er takmarkað
hvað hægt er að endurtaka af efni, sem áður hefur birtst í
ritinu, og það jafnvel þótt „túlkun þessara höfunda verði vart
náð af nýjum höfundum um sinn,“ eins og Sigurður orðar
það. Annars hefði verið ánægjulegt að heyra hvað lionum
finnst um það nýtt efni sem i ritinu hefur birst undanfarin
ár. Og hvað þvi viðvíkur að annast fræðslu og útbreiðsiu-
starfsemi i fjölmiðlum, þá hefur það aldrei verið rösklegar
gert en undanfarið, því ritstjóri þessa tímarits flutti sjö erindi
og tiu skemmri þætti í hljóðvarpi á s.l. vetri. Fleiri hafa því
fengið fræðslu um þessi efni en nokkru sinni áður í sögu
Morguns. Kannski hefur Sigurður ekki heyrt neitt af þessu?
Ritstj.