Morgunn - 01.12.1996, Síða 5
Guðjón Baldvinsson:
Ritstjórarabb
Ágætu lesendur
Er líf eftir dauðann?
Hver hefur ekki spurt sjálfan sig þessarar spurn-
ingar? Eg hygg að þeir séu frekar fáir, sem ekki hafa
gert það, þó sjálfsagt komist fólk að mismunandi nið-
urstöðu um svar við henni, þ.e.a.s. þeir, sem telja sig
komast að einhverri niðurstöðu um hana. Trúarbrögð
heimsins hafa alla tíð að megin inntaki fjallað um
þetta atriði, jafnt hjá svo kölluðum siðmenntuðum
þjóðum, sem þeim, sem stundum eru nefndar ósið-
menntaðar, a.rn.k. frá sjónarhóli þess, sem telur sína
siðmenningu hina einu réttu.
Einhvern veginn finnst mér að það hljóti í raun og
sannleika að vera ákaflega erfitt að gera sér í hugar-
lund aðra staðreynd en þá, að líf einstaklingsins haldi
áfram að loknu þessu jarðlífi okkar og sé þá á sama
hátt til fyrir komu hans hingað.
Hversu tilgangslaust væri það ekki ef það varaði
aðeins þessi 70-80 meðaltalsár á eilífðarbrautinni. já,
eilífðarbrautinni, allir tala um hana og vísindamenn
hafa löngum talið sannað að jörðin sem slík, sé búin
að vera til í 4 til 5 milljarða ára. Þessi eilífðarbraut
MORGUNN 3