Morgunn


Morgunn - 01.12.1996, Page 7

Morgunn - 01.12.1996, Page 7
Ritstjórarabb En svona einfalt getur þetta nú tæplega verið. Sál- in er sérstæð, hún kernur annarsstaðar frá í líkamann og fer annað þegar hann hefur lokið sínu hlutverki. jarðneski líkaminn er hreint og klárt starfstæki, sem nauðsynlegt er til þess að geta lifað og starfað á jörð- inni, ekki ósvipað því að geimfarar t.d. verða að fara í sérstaka búninga til þess að geta lifað og starfað á tunglinu. Á sama hátt og framferði okkar og hugsun- arháttur hefur áhrif á nánasta umhverfi og samskipti við aðra, í nútið og nánustu framtíð í núverandi um- hverfi, hefur það á nákvæmlega sama hátt áhrif þeg- ar til lengri tíma er litið, sem sagt út yfir gröf og dauða. Hvernig ætti líka annað að vera. Allt okkar líf, öll okkar tilvera, er í raun sama lögmálinu háð, hver svo sem stærð einingarinnar er, hvort setn hún er svo smá að hún verður ekki greind með eðlilegum hætti eða svo stór að skilning skortir til að gera sér grein fyrir henni. Sumum hættir til að aðgreina og sér- kenna allt sem til er, ef til vill vegna þess að það hef- ur ekki sömu ytri einkenni. En gerum ráð fyrir því að líf sé eftir dauðann. Og hvernig er svo það líf? Marg- ir viija trúa því að það hljóti að vera gjörólíkt því sem á jörðinni tíðkast og bregðast neikvætt við ef öðru er haldið fram. Þó hafa þessir sömu, út af fyrir sig, ekki gert sér nákvæmari hugmynd eða rök fyrir því, sem við tekur í umhverfi og lífsmáta lífsins fyrir handan, eins og það gjarnan er nefnt, en að þar séu endalaus- ar grænar sléttur, blár himinn, eilíf sól, hamingja, ást og samlyndi. Sem sagt fyrirmyndar himnaríki. Þetta nryndi þýða það að þegar einstaklingur deyr þá yrði einhver gjörbylting á honum, hann yrði allt í einu engli líkur, hvernig svo sem hann var áður. Erfitt er MORGUNN 5

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.