Morgunn - 01.12.1996, Síða 21
Efnið og andinn
hjá því þar með og hafa huglækningar verið stór þátt-
ur í starfseminni síðan.
Ég tel svo að þessi starfsemi hafi haft áhrif á nið-
urstöður sem út komu í könnun dr. Erlends Haralds-
sonar, sem hann gerði um dulræna reynslu íslend-
inga. í þeirri könnun kemur fram, úr eitt þúsund
manna úrtaki, á aldrinum 20-70 ára, að 45% að-
spurðra höfðu haft samband við rniðil til lækninga
með 92% jákvæðum árangri. Auk þessa stundaði
Sveinbjörg Sveinsdóttir fyrirbænir og ég held að til
hennar hafi leitað að meðaltali tíu aðilar á dag, allt
árið um kring, sem þýðir a.m.k. 3000 beiðnir á ári.
Hún skráði öll nöfnin í sérstaka bók, sem hún hafði
til fyrirbæna.
Kirkjan og spíritisminn
Mikilvægt undirstöðuatriði í þessum málum er
þetta: Blind trú útilokar skilning, án skilnings er eng-
inn andlegur þroski, en andlegur þroski er megin til-
gangur hverrar jarðvistar. Það þýðir að kirkjan er
ekki að vinna að því verkefni sem hún á að vera að
vinna að, því hún gengur út frá bókstaf þar sem mið-
að er við trú og þekkingu, sem var til staðar fyrir
2000 árum og gengur þar með út frá því að engin
viðbót né þróun hafi orðið í andlegri þekkingu síðan.
Það stangast á við alla aðra þekkingu sem við höl'um
í dag. Þar með er kirkjan að vinna gegn þroska þeirra
einstaklinga sem hún segist bera umhyggju fyrir.
Þetta er stöðnun og stöðnun þýðir dauði. Þetta er
það, sem þeir eru að berjast við. Það er því mín skoð-
un að kirkjan eigi að vera aðskilin frá ríkinu, það þarf
morgunn 19