Morgunn


Morgunn - 01.12.1996, Side 43

Morgunn - 01.12.1996, Side 43
Dulrænar frásagnir... Nú tók ég sængina og koddann, lagðist niður í sófa og svaf þar þá nótt. Daginn eftir stóð mér ekki á sama og ég varð smeyk, því ég vissi ekki hvað þetta var eða hvað það vildi. Ég sagði engum frá þessu svo fólk teldi mig ekki ruglaða. Þó tengdi ég þetta því að ég vildi ekk- ert með þessa hæfileika gera. Þarna var ég búin að sjá auglýsingu um skólann okkar og hafði reynt að hringja tvisvar, ég ákvað að reyna einu sinni enn hvort ég næði sambandi. Ég náði loks sambandi og var þetta upphafið að dvöl minni í Sálarrannsóknaskólanum. Það sumar varð mikil uppstokkun hjá mér sem gerði það að verkum að kvöld eitt þá um haustið, ákvað ég að fresta öllum þessum málum í lífi mínu, sem og skólanum fram yfir jól, þá vegna tímaleysis og fjárhagsástæðna. Ég var búin að slökkva Ijósin og var að sofna þeg- ar hurðinni á herberginu mínu er þeytt upp og þessi mikli stormur æðir um herbergið svo söng í öllu. Ég hrökk fram úr rúminu með það sama og þá skelltist hurðin aftur með álíka látum. Ég rauk út í glugga og sá að úti var sama veður og áður, blankalogn og rigningarúði. Ég fór niður, hugsaði málið aftur og tók þá ákvörð- un að halda áfram að vinna í þessum málum eitthvað, og að fara aftur í skólann um haustið og sjá til hvern- ig þessir hlutir hjá mér þróuðust. Síðan hef ég ekki fundið fyrir þessu og tengi ég það þeirri ákvörðun að ég ákvað að vinna meira í þessum málum hjá mér og fræðast eitthvað meira af viti um þessi mál, í stað þess að vera að rangla sífellt ein með öll þessi mál á bakinu, í hinni venjulegu íafræði, sem almennt er um MORGUNN 41

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.