Morgunn - 01.12.1996, Page 57
Af litum og lækningum
Til þess að gera þetta auðskildara en ella, ætla ég
að segja frá ýmsu sem ég tel mig nú skynja á annan
hátt, en ég hafði gert áður en ég fór að sýsla við and-
legu málin.
Hvort þið fáið hliðstæða reynslu og ég tel mig hafa
fengið, er ekki gott að segja en ég hvet ykkur til að
hafa hugann opinn fyrir þessu.
Og þar með hefjast þessar frásagnir:
Hvaðan komu boðin?
19. mars 1993, var ég fundarstjóri á skyggnilýsing-
arfundi hjá miðlinum Þórunni Maggý Guðmunds-
dóttur.
Úti var leiðindaveður, nokkur vindur og talsverð
snjókoma. Ég átti því ekki von á að margmennt yrði
á fundinum.
Er ég var að leggja af stað að heiman, hringir sím-
inn og er það Maggý, sem hringir. Hún spyr mig
hvort ég telji nokkrar líkur á að einhverjir mæti og
hvort ekki væri hægt að afboða fundinn.
Ég sagði henni að mér sýndust engin tök á afboð-
un þar sem svo áliðið væri. Ég teldi að við yrðum
bara að mæta og sjá hverju fram yndi.
Eins og vænta mátti féllst Þórunn strax á þetta.
Að vanda mætti ég mjög tímanlega eða kl. 19.30,
en fundurinn átti að byrja kl. 20.30 og ætlaði ég að
nota tímann til að raða upp stólum og hafa allt tilbú-
ið.
Þar sem ég var ekki með lykil að húsinu ætlaði ég
bara að hinkra uns hann kæmi, en sú sem með hann
var, ætlaði að koma á svipuðum tíma og ég.
morgunn 55