Morgunn - 01.12.1996, Page 62
Aflitum og lækningum
unnar hjúpi þar til nú og hefði haldið áfram að ryk-
falla bæði í möppu sinni og huga mér hefði Guðjón
Baldvinsson, núverandi ritstjóri Morguns með meiru,
ekki innt mig eftir því í liðinni viku, hvort ég ætti
ekki í fórum mínum eitthvert efni í Morgunn, sem ég
taldi ekki vera, en fór samt að fletta möppu þeirri er
geymir ýmsar ófrágengnar skriftir og viti menn, þar
kom þessi grein að mestu frágengin. Þessi greinar-
fundur gerir það að verkum að ég get hér og nú, lok-
ið við nefndar frásagnir.
Þegar ég hafði rætt við Þórunni Maggý og Guð-
mund, fór ég á fund læknis þess sem Guðmundur
benti mér á og skoðaði hann mig vel og vandlega en
kvaðst að lokum því miður ekki geta hjálpað mér, því
hér væri eitthvað að sem hann þekkti ekki.
En hvort það er vegna þess að ég gæti betur að
hálsi mínum og brjósti en áður eða lækna þeirra að
handan, sem ég veit að hjálpa mér oft og tíðum, skal
ég ekki fullyrða en ég er mun betri en ég var áður.
Verð einfaldlega aldrei eins slæmur, þó ég sé ekki
fullbata. □
60 MORGUNN