Morgunn


Morgunn - 01.12.1996, Page 69

Morgunn - 01.12.1996, Page 69
Eru kraftaverk kraftaverk? komast fram fyrir í ímynduðu framabrölti og egóisma. Þessir eru sjálfum sér verstir. Einn þáttur Iögmálsins er sá, að þú færð tilbaka það, sem þú gef- ur og þá gjarnan með vöxtum. Og þetta lögmál verk- ar hvort sem gjöfin er neikvæð eða jákvæð. Ef einhver heldur að hann geti sí og æ verið að strá um sig eiturbroddum og traðka með skítugum skón- um, ef svo má segja, í andlegri tilveru annarra, án þess að uppskera eins og hann sáir, þá er það sorg- lega mikill misskilningur. Stundum finnst mér að fólk sé haldið þeirri hugs- anavillu að úr því að það lendi ekki sjálft í nákvæm- lega sömu aðstöðu og það fólk, sem það e.t.v. er að koma í með framkomu sinni og gerðum, þá hljóti allt þetta tal um lögmál orsaka og afleiðinga að vera hjóm og vitleysa. En það er það svo sannarlega ekki. Með því að gera á hlut annarra, þá erum við að spilla fyrir möguleikum okkar, við erum að slíta þræði, sem eru spunnir úr kærleika í vefnaði lífsins. Og hvað þýðir það? ]ú, þeir þræðir, sem við treystum á, verða smám saman fleiri spunnir úr þáttum neiðkvæðra til- finninga, ágirndar og sjálfselsku. Það segir sig sjálft að ólíklegt er að þeir þræðir skapi okkur brú til ánægjulegs og gefandi lífs. Við erum sem sagt á hverju augnabliki að skapa þætti í þræði, sem smám saman skapa þann vefnað, sem lífsferð og hamingja okkar byggist á. Og skyldi þessi vefnaður vera úr hefðbundnum lopa og ullarbandi? Ó, nei, ekki er það nú. Efnið í þessum þráðum er jákvæðni og kærleik- ur, eða andstæða hans, neikvæðni og hatur, og í raun allt þar á milli, allt eftir því hvaða grunnefni við velj- um að nota í lífsverkið, sem er það að spinna sinn morgunn 67

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.