Morgunn


Morgunn - 01.12.1996, Side 79

Morgunn - 01.12.1996, Side 79
Hugheimar um orðum: sæla hvers og eins takmarkast af því, hve sæluþrá hans er mikil og engu öðru. Og menn geta fyrst farið að átta sig á eðli lífsins og uppsprettu þess, þegar komið er til hugheima. Þar fyrst geta menn fengið dálitla hygmynd um hvað guð (Logos) hlýtur að vera og hver er tilgangur hans með mannlífið. Þegar við höfum einu sinni komið auga á hinn stórfellda veruleik, er blasir þar við okkur og vekur hjá okkur óumræðilega undrun, getur ekki hjá því farið, að við sjáum að við hljótum að líta héðan í frá, allt öðrum augum á lífið en við höfum áður gert. Og okkur hlýtur að reka í rogastans er við sjáum hve afskaplega ófullkomnar hgmyndir allir veraldar- hyggjumenn hafa gert sér um sanna sælu. Við komumst ekki hjá því að sjá, að flestar sæluhug- myndir þeirra eru „reykur, bóla eða vindaský,“ eru allt annað en þær eiga að vera og gætu ekki veitt verulega sælu, þótt þær breyttust í veruleika; enda stefna slíkir menn í þveröfuga átt við sælu þá, sem þeir eru að leita að. í hugheimum getur fyrst að finna þá fegurð og þann sannleika, sem jafnvel hinir feg- urstu skáldadraumar fá ekki jafnast við. Og í hinum óviðjafnanlega dýrðarljóma hugheima, sýnist öll veruleg gleði deprast og dvína og varla verða annað né meira en ömurleg blekking, er hefur enga full- nægju í sér fólgna. Við verðum að reyna að gera nokkuð ítarlegri grein fyrir öllum þessum atriðum síðar. En það, sem við viljum taka nú sérstaklega fram, er það, að þessi óumræðilega sælutilfinning, sem hver maður verður gagntekinn af, undireins og hann kemur á hið himneska tilverustig, er eigi aðeins sprottin af því að MORGUNN 77

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.