Morgunn


Morgunn - 01.12.1996, Page 87

Morgunn - 01.12.1996, Page 87
Hugheimar móta ný og ný hugsanagervi úr hinu áhrifanæma frumgervisefni hugheima, af því að þau breyttu, að því er honum sýndist, öllu umhverfi hans á sömu stundu. Þess ber þó að gæta, að það er sitthvað að menn haldi huganum í stilli eða að þeir geri sig alveg hugs- unarlausa, eins og þeim mönnum er ráðlegt, er vilja temja sér sérstakar Hatha-jóga aðferðir. Hatha-jóga iðkendur kosta því umfram allt kapps um að halda huganum aðgerðarlausum, svo að engin hugsun frá manninum sjálfum verði þeim áhrifum til fyrirstöðu, er að honum berast, og er slíkt ástand mjög áþekkt dáleiðslu miðla. Hinsvegar hefur hver sá maður, sem heldur huga sínum í stilli, fulla meðvitund. Hann læt- ur hugann halda kyrru fyrir aðeins til þess, að hans eigin hugsanir eða skoðanir hafi engin áhrif á útlit þeirra hluta, sem hann vill athuga. Og þegar nú slíkur aðkomumaður í hugheimum hefur stöðvað huga sinn og er kominn í þetta kyrrð- arástand, kemst hann að raun um að jafnvel þótt allt þetta furðulega ljós, litir, blik, ómar og gervi, streymi nú ekki framar út frá honum sjálfum, þá er það ekki horfið, síður en svo. Öll þessi fegurð og litskrúð og ljómi, sýnist meira að segja miklum mun meiri og mikilfenglegri en nokkru sinni áður. Og ef hann fer að reyna að grafast fyrir um, hvernig á öllum þessum ljóma stendur, kemst hann brátt að raun um, að þetta eru ekki aðeins tilgangslaus lj ósafyrirbrigði, ekki eins konar himnesk norðurljós, heldur ljós og litbrigði er hafa ákveðna merkingu, sem honum er vinnandi veg- ur að vita hver er, og þá sér hann að öll þessi óum- ræðilega ljósa- og litadýrð, er hafði hrifið hann svo MORGUNN 85

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.