Morgunn - 01.12.1996, Blaðsíða 87
Hugheimar
móta ný og ný hugsanagervi úr hinu áhrifanæma
frumgervisefni hugheima, af því að þau breyttu, að
því er honum sýndist, öllu umhverfi hans á sömu
stundu.
Þess ber þó að gæta, að það er sitthvað að menn
haldi huganum í stilli eða að þeir geri sig alveg hugs-
unarlausa, eins og þeim mönnum er ráðlegt, er vilja
temja sér sérstakar Hatha-jóga aðferðir. Hatha-jóga
iðkendur kosta því umfram allt kapps um að halda
huganum aðgerðarlausum, svo að engin hugsun frá
manninum sjálfum verði þeim áhrifum til fyrirstöðu,
er að honum berast, og er slíkt ástand mjög áþekkt
dáleiðslu miðla. Hinsvegar hefur hver sá maður, sem
heldur huga sínum í stilli, fulla meðvitund. Hann læt-
ur hugann halda kyrru fyrir aðeins til þess, að hans
eigin hugsanir eða skoðanir hafi engin áhrif á útlit
þeirra hluta, sem hann vill athuga.
Og þegar nú slíkur aðkomumaður í hugheimum
hefur stöðvað huga sinn og er kominn í þetta kyrrð-
arástand, kemst hann að raun um að jafnvel þótt allt
þetta furðulega ljós, litir, blik, ómar og gervi, streymi
nú ekki framar út frá honum sjálfum, þá er það ekki
horfið, síður en svo. Öll þessi fegurð og litskrúð og
ljómi, sýnist meira að segja miklum mun meiri og
mikilfenglegri en nokkru sinni áður. Og ef hann fer
að reyna að grafast fyrir um, hvernig á öllum þessum
ljóma stendur, kemst hann brátt að raun um, að þetta
eru ekki aðeins tilgangslaus lj ósafyrirbrigði, ekki eins
konar himnesk norðurljós, heldur ljós og litbrigði er
hafa ákveðna merkingu, sem honum er vinnandi veg-
ur að vita hver er, og þá sér hann að öll þessi óum-
ræðilega ljósa- og litadýrð, er hafði hrifið hann svo
MORGUNN 85