Morgunn - 01.12.1997, Blaðsíða 11
Ritsljórarabb
inn andlegri af því? Þetta var gert í ákveðnum tilgangi,
millistig, sem ekki varð hjá komist. Ég vil treysta því að ég
fari ekki með staðlausa stafi. Já, ég veit reyndar að svo er
ekki, en ég vona að ég komist ekki klaufalega að orði þegar
ég staðhæfi, að allt þetta líður undir lok. Þessi íyrirbæri eru í
eðli sínu mjög grófgerð leið og ber að skilja þau sem tilraun
til að mætast á miðri leið milli hærri og lægri sveiflutíðni. Þið
megið haga þessu að vild meðan á því stendur, en þessar
leiðir til samskipta eru á förum, þær hverfa.
Þá stendur samt eftir sannfær-
ing um að líf er að loknu þessu,
sem verður dýpri og varanlegri og
einnig fegurri en áður hefur verið
á jörðinni ykkar. Við vitum að sá
dagur er ekki fjarri, þegar þið börn
jarðar hafið eignast meðvitund
um andlegu orkuna, sem umlykur
ykkur. Líf ykkar verður þróaðra.
Þið lærið að samhæfa efnið og
andann. Þið munuð komast lengra
en það að kunna skil á andlegum
grundvelli alls lífs í geimnum. Þið
munið eignast innri vitund um
veruleikann. Og í stað þess að
treysta á dulræn fyrirbrigði kemur innri sannfæring sálar-
innar um það að maðurinn lifir af líkamsdauðann, sem
verður öllum sameiginleg. Við köstum ekki rýrð á skyggni
eða önnur sálræn fýrirbrigði. Það er ekki venja okkar að
óvirða eða fordæma, en við getum sagt það sem satt er:
Þessi fyrirbrigði fullnægja ekki þörf ykkar.“
Silfur-Birkir sagði eftirfarandi um komu sína hingað að
jarðsviðinu til fræðslu:
MORGUNN 9