Morgunn - 01.12.1997, Blaðsíða 84
Áfangaskýrsla rannsóknanefndar SRFÍ
fólks og þess, sem ekki telur sig hafa yfir slíkum liæfi-
leikum að ráða. Hugsum við okkur þetta sem m.a. sönn-
unartæki fyrir vissum dulrænum hæfileikum og e.t.v.
hjálpartæki til athugunar á hvort þeir séu fyrir hendi, þó
viðkomandi hafi e.t.v. ekki tekið sérstaklega eftir því.
Verkefni 6.
Nefndin stóð að myndatökum með einni vídeóupp-
tökuvél í lit og tveimur reflex myndavélum, annarri með
litfilmu, hinni svart/hvítri, af tilraun, sem gerð var með
svo kallaða „transfiguration“ hjá enska miðlinum Terry
Trace. Ljóst er að þessar myndatökur tókust ekki sem
skyldi, m.a. og einna helst vegna rangrar lýsingar. Vonir
standa til að nefndin geti gert aðra slíka tilraun í
september n.k., þegar Terry kemur til SRF í Keflavík og
hefur hún gefið vilyrði sitt fyrir því. Er vonandi að betur
takist til þá. Er þetta hugsað sem heimild og sönnun fyrir
aðra þá, sem ekki hafa átt þess kost að kynnast svona
fyrirbæri.
Verkefni 7.
Unnið hefur verið að því af nefndarmönnum, allt frá því
að miðillinn Gladys Fieldhouse var hjá félaginu vorið
1987, að skrá niður atriði sem fram koma á almennum
skyggnilýsingafundum hjá miðlum er koma hingað á
vegum félagsins. Er hér um að ræða atriði eins og fjölda
þeirra sem í gegn koma, fjölda þeirra sem þekktust, nefnd
nöfn og hlutfall þeirra, sem þekktust, nefnd atriði, hve
mörg þeirra pössuðu, pössuðu ekki eða viðkomandi var
ekki viss um. Upp á síðkastið hafa jafnvel verið tekin með
ráð, sem gefin eru og spádómar. Er svo hugmyndin að
athuga með tölvuvinnslu á þessum upplýsingum og upp-
82 MORGUNN