Morgunn - 01.12.1997, Blaðsíða 61
Anclleg vernd
sem er talið vera hið helga hljóð sköpunar. Það gœtu verið
goðsagnatákn eins og Herkúles og Díana eða myndir
trúarvera sem þú treystir, svo sem Jesús, Búdda eða Kuan
Yin. (Eg mun útskýra síðar hvernig og hvers vegna þessi
tákn eru af sannri orkuhjálp).
Vertu óhrœddur við að hanna sjálfur innra form
kúlunnarþinnar oggerðu hvað það sem virðist hjálpa þér
við að efla styrk hennar.
Sjáðu fyrir þér sérstaklega sterk tákn, svo sem eins og
krossinn eða fimmarma stjörnuna, utan á bólunni og
styrktu þannig byggingu hennar.
Skrifaðu slagorð á ytri hlið hennar, svo sem eins og
„ Vertu úti, “ eða „Lokað fyrir slœm áhrif “
Mikilvæg áminning: Gakktu alltaf úr skugga um að
kúlan nái undir fœtur þína og upp bakið. Og eins og alltaf
vertu jarðtengdur og í öndun.
Algengasta spurningin um kúluæfinguna er um hversu
stór kúlan eigi að vera. Flestum finnst best að vinna með
kúlu sem nær u.þ.b. 4 eða 5 fet út írá sér. Aðrir hafa hana
stærri. Ég hef þekkt fáeina sem nota kúlu er leggst þétt að
líkamanum og þeir klæðast henni eins og hanska eða
kafarabúningi. Kúlurnar eru teygjanlegar svo að ef þú ert
þar sem þröng er á þingi þá rifna þær ekki upp, heldur
laga sig utan um þig í stað þess að inn í þær verði komist.
Önnur algengasta spurningin er hversu lengi kúlan
endist. Það fer eftir því hversu reglulega þú gerir æfing-
una og hversu mikla einbeitingu og orku þú leggur í gerð
hennar. Ef, í næsta skipti þegar þú ert í klípu, þú reynir að
búa til kúlu án þess að hafa æft þig í því áður, þá verður
kúlan þín ekki til mikils gagns. Til þess að hún virki
almennilega þá þarf nokkra æfingu og endurtekningar.
MORGUNN 59