Morgunn - 01.12.1997, Qupperneq 12
Ritstjórarabb
„Þegar ég var spurður að því, fyrir mörgum, löngum
árum, hvort ég vildi snúa aftur til heims efnisins og finna
á jörðinni hóp fólks, sem vildi starfa með mér að því að
kynna boðskap andans, þá játti ég því, eins og margir
fleiri, og mér var falið hlutverkið. Mér var sagt að ég
þyrfti að leita að og finna starfstæki og tengja mig því
þannig að ég gæti komið í gegnum það þeim boðskap,
sem mér var falið að koma til skila. Ég leitaði þvi í skrám
okkar og fann miðilinn minn.
Ég fylgdist með honum frá þeim tíma er hann fór að
skilja og frá þeirri stundu, sem andinn fór að tjá sig, þó í
litlum mæli væri, hóf ég afskipti mín og byrjaði þar og þá,
það samband, sem síðan hefur varað öll þessi ár.
Ég hjálpaði til við að móta andann og hinn örlitla huga
og í gegnum sérhvert þróunarstig lífs hans, fylgdist ég
með hverri reynslu, lærði hvernig komast mætti í náið
samband og ég kynnti mér allan huglægan þroska og
líkamlegar venjur hans í æsku. Ég rannsakaði starfstæki
mitt frá öllum hliðum, huga, anda og jarðlíkama. Og síðan
varð ég að leiðbeina honum til skilnings á þessum
sannleika andans. Fyrst leiddi ég hann til þess að kynna
sér hin margvíslegu trúarbrögð í efnisheimi ykkar, þar til
hugur hans gerði uppreisn og fór að verða það, sem í
ykkar heimi er kallað að vera trúleysingi. Og þegar það
tímabil hafði lokið hlutverki sínu í hinni huglægu
vakningu, þá var hann reiðubúinn fyrir ætlunarverk mitt,
sem var að tala í gegnum hann.
Ég leiðbeindi honum til fyrsta miðilsfundar hans. Ég
hjálpaði honum til þess að komast i fyrsta þróunar-
hringinn. Og þar, í þeim krafti sem var til staðar, gerði ég
fyrst vart við mig, reyndar mjög ófágað og hversdagslega,
en það var samt sem áður mjög mikilvægt og þar mælti ég
10 MORGUNN