Morgunn - 01.12.1997, Blaðsíða 83
Áfangaskýrsla rannsóknanefndar SRFÍ
einhverja þess til starfa fyrir félagið, vilji þeir gera svo og
æski stjórnin þess.
Ljóst er að hér getur orðið um viðamikið verkefni að
ræða og mun því vísast nokkur tími líða áður en verulegur
árangur næst. Teljum við að margt mark- og rannsóknar-
vert geti borist inn á borð nefndarinnar og félagsins í
gegnurn söfnun þessa. Upplýsingum þessum er fyrir-
hugað að koma síðar fyrir í aðgengilegu skjala- eða tölvu-
formi. Hugsanlegt er að það yrði jafnframt fyrsti vísir að
verulegu heimildasafni, en hugmynd að slíku safni var
skotið að nefndinni af Guðmundi Einarssyni, stjórnar-
manni í SRFÍ. Er það reyndar svo yfirgripsmikið verkefni
að skipa þyrfti sérstakan starfshóp utan um það. Er hér átt
við margvirkt heimildasafn urn bækur, greinar, viðtöl,
dulræna hæfileika, tilraunir með þá og flest þeim tengt,
þannig að nálgast megi atriði innan þess frá mörgum
upphafsleiðum.
Verkefni 5.
Ævar Jóhannesson vinnur að srníði svo kallaðs
Random-úrtöku mælitækis og er hugmyndin að nota það
við könnun á því hvort fólk skynjar ljós út frá rafmagns-
leiðslu þegar straurn er hleypt á hana. Virkar það þannig
að það hleypir straumi á eftir random-úrtaki og er það
algjörlega háð tilviljunum hversu ört og hvenær það
skeður. Sá, sem prófaður er, situr svo með hnapp í hendi
og þrýstir á hann þegar hann telur sig sjá eitthvað í
kringum leiðsluna. Utan hans augsýnar verður svo síriti,
sem skráir hvenær straumi var hleypt á og til samræmis
hvenær viðkomandi manneskja ýtti á hnappinn. Er
hugmyndin að gera þessa tilraun jafnt á rneðal dulræns
MORGUNN 81