Morgunn - 01.12.1997, Síða 80
Ajangaskýrsla rannsóknanefndar SRFI
þess almennt til dulrænna fyriræra? Hvaða fólk er félagar
í SRFÍ?
Verkefni 3.
Guðmundur Einarsson hafði skotið að nefndinni bók
nokkurri og all merkri, er rituð hafði verið af John G.
Fuller um rannsóknir manns nokkurs, Georg Meek að
nafni, en hann taldi sig hafa náð talsambandi með tækjum
við fólk fyrir handan. Nefndi hann tækið Spirocom, sem
er stytting á ensku orðunum „Spiritual communication.“
Nefndi Fuller bókina „The ghost of 29 megacycles.“
Leist okkur vel á þessar hugmyndir Meeks og hófum
undirbúning að því að ná sambandi við hann. Fengum við
m.a. teikningar frá honum af tæki, sem þeir höfðu smíðað.
Þann 18. febrúar átti nefndin þess svo kost að hitta um-
ræddan Georg Meek, er flugvél, sem hann var farþegi í,
millilenti í Keflavík, en hann var þá á könnunarferð í
Evrópu á vegum félags þess er hann hefur komið á fót um
þessar rannsóknir og nefnir Metascience. Var hann að
fylgjast með framforum í þessari tækni en slíkar tilraunir
er verið að gera í nokkrum löndum Evrópu.
Niðurstaða þessa fundar okkar var í stórum dráttum sú
að ekki væri ástæða til flókinnar tækjasmíði til þessara
hluta, þar sem þeir teldu að notast mætti við jafnvel
venjuleg útvarpstæki í þessu sambandi.
Nýtt og merkilegt atriði kom og fram á þessum fundi en
það voru myndir er Meek sýndi okkur, sem hann og
aðstoðarmenn hans hjá Metascience hafa náð í gegnum
sjónvarpstæki með aðstoð fólks að handan og telja þeir
nokkuð fullvíst að þessar myndir séu frá heimi látinna.
Eru þær bæði af fólki og landslagi. Hafa slíkar myndir
einnig náðst í Luxemburg og V-Þýskalandi og hefur á
78 MORGUNN