Morgunn - 01.12.1997, Blaðsíða 71
Ljósverur: englar eða andar?
tengingar eða samskipti við þá hæstu, nöfn eins og
englana Michael eða Gabriel, sem þeir óreyndari eru
uppteknir af.
Englar eru raunverulegir, þeir eru til og hafa áhrif, þó að
þau séu óræð og óbein í mannlegu lífi. En á milli þeirra
og okkar er ótölulegur fjöldi upplýstra sálna, sem eru á
sama hátt í því starfi að þjóna þróun okkar.
Þegar við síum atburði í gegnum huga, sem háður er
fjölda náttúruafla, þá kann maður að sjá engil þar sem er
einungis venjulegur andi, þroskaður og kærleiksríkur
reyndar, en langt frá því að vera engillegur.
Þar sem þessi áhugaalda ijarar út án þess að fullnægja
algjörlega andlegum þorsta okkar, þá stöndum við eftir og
veltum fyrir okkur hvað komi næst. Þeir, sem stjórna
andlegri vakningu okkar, hljóta að vera í óða önn að leita
að nýju verkfæri til að ná athygli okkar. Þar sem tímabil
athygli nútíma þjóðfélaga virðist vera að styttast með
hverjum deginum sem líður, þá eru þeir vissulega að
undirbúa nýjar áætlanir til þess að leiða fólk aftur að sínu
dýrlega innra ljósi. Ferðin með englunum hefur verið
skemmtileg. Þeir hafa veitt fólki nýja tilfinningu fyrir því
sem er mögulegt og vakið marga til hins guðdómlega
krafts trúarinnar.
Þýö.: G.B.
MORGUNN 69