Morgunn - 01.12.1997, Qupperneq 36
Hugsanaflutn ingur
„Ég er enn ekki viss uni að vitneskja mín um sjúkdóm
föður míns hafi verið hugsanaflutningur á milli hans, í
meðvitundarleysi hans, og mín, eða á milli áhyggjufullrar
móður minnar og mín. Frá hverjum sem það nú var, þá
skynjaði ég alvarleika ástandsins mjög kröftuglega þrátt
fyrir hina miklu fjarlœgð, en ekki með því að sjá mynd,
heldur eingöngu sem tilfinningaleg viðbrögð við erfið-
leikum. “
Frásögn frá okkar döguni
Kuki Gallman segir frá í bókinni „Mig dreymdi um
Afríku," útg. 1991, þeim degi þegar eiginmaður hennar,
Paolo, lést í bílslysi í Kenya:
„ Sýnin kom mjög sviplega og ég gat ekki losað mig við
hana. Ég sá hrœðilega skýrt fyrir innri sjónum mínum, bíl
Paolos liggja í klessu og þá vissi ég að hann var dáinn. “
Frú Gallman gekk aftur til hússins full sársauka til þess
að bíða eftir fregninni.
„Ég var tilbúin þegar fyrsti bíllinn kom. Það var Tubby
Bloclt, vinur frá gömlu, góðu dögunum. Sársaukinn, sem
skein úr andliti hans breyttist í uppnám þegar ég sagði
með brostinni röddu:
„Ég veit það. Paolo er farinn. Hann sagði mér það
sjálfur. “
Kenningarnar
Ef maður á að trúa þessum frásögnum þá eru til margar
sannanir fyrir dulrænni skynjun (ESP), en rann-
sóknamenn eins og dr. Ian Stevenson, verða að játa að
jafnvel eftir fjölmargar, ákafar tilraunir sem gerðar hafa
verið áratugum saman, þá hafa menn ennþá „hörmulega
litla vitneskju" um hvað það er sem þarna er að verki.
34 MORGUNN