Morgunn - 01.12.1997, Blaðsíða 78
Áfangaskýrsla rannsóknanefndar SRFI
er það einnig hlutverk hennar að afla, geyma og miðla
upplýsingum um ýmis konar dulræna upplifun og reynslu
fólks, sem ekki verður skýrð eðlilega, enn sem komið er.
í ljósi þessa ákvað nefndin að hafa ekki neinar vöflur á
og heija starfsemi hið fyrsta og var fyrsti fundur hennar
haldinn 16. október 1987, þar sem fyrstu drög að starfinu
voru lögð. í upphafi höfðu tvær tillögur að verkefnum
borist inn á borð nefndarinnar og voru þær í fyrsta lagi frá
stjórn félagsins um athugun á sérkennilegum ljósmyndum
af manni nokkrum og í öðru lagi frá skrifstofustjóra
félagsins um könnun á meðal félagsmanna. Þessum
verkefnum hrintum við í framkvæmd þá þegar og fór þar
fyrst ljósmyndatilraun með fyrrgreindum manni, sem
reyndist eiga í fórum sínum myndir af sér, teknar af
honum sjálfum, á árabilinu 1970-1972, og sást í gegnum
hann á þessum myndum. Tilraunin leiddi ekkert
óvenjulegt í ljós, eins og hún var unnin að þessu sinni. Við
teljum henni þó ekki vera lokið, því eftir er að skoða
myndavél hans betur, koma í kring myndatöku
framkvæmdri af honum sjálfum og jafnvel sköpun
hagstæðra hughrifa í kringum hann. Enn hefur þó ekki
unnist tími til þess að koma þessu í verk. Geta má þess að
við höfum fengið fregnir af svipuðum myndum frá
rannsóknamanni, Georg Meek að nafni, frá Banda-
ríkjunum, sem hann tók af sjálfum sér. Telur hann að þar
hafi ljós af vissri bylgjulengd skipt mestu máli. Munum
við væntanlega reyna að útbúa sams konar myndir við
sem líkastar aðstæður og voru hjá báðum þessum aðilum.
Verkefni nr. 2
var, sem fyrr sagði, undirbúningur skoðanakönnunar
um ýmis dulræn efni, á meðal félaga SRFÍ. Hófst það
76 MORGUNN