Morgunn - 01.12.1997, Blaðsíða 26
Sannanir fyrir lífi eflir dauðann
En sumt fólk, sem segir frá reynslu sinni af því að deyja,
hefur hitt andlegar verur:
„Ég stóð upp og gekk inn í anddyrið til þess að fá mér
drykk og það var á þeirri stundu, eins og þeir komust að
síðar, að botnlanginn í mér sprakk. Eg veiktist hastarlega
og féll niður. Ég fór að finna fyrir hreyfingu, ég var að
fœrast út úr líkamanum og heyrði jafnframt fallega tónlist.
Ég sveif eftir anddyrinu, út um dyrnar og út á glerbyggða
veröndina. Þar var nánast eins og að ský, í rauninni bleik
móða, byrjaði að safnast utan um mig og síðan sveif ég
upp í gegnum glerið eins ogþað vœri ekki til og síðan beint
upp í þetta hreina, krislaltœra Ijós, lýsandi hvíta Ijós. Það
var yndislegt og svo bjart, svo geislandi, en það reyndi
ekkert á augu mín. Þetta var ekki Ijós af neinu því tagi sem
hœgt er að lýsa á jörðinni. Ég sá ekki í raun neina
manneskju í þessu Ijósi, en samt hafði það svo sannarlega
sérstakan persónuleika. Það er Ijós fullkomins skilnings og
fullkomins kœrleika. Upp í huga mín komu orðin:
„Elskarðu mig? “
Þetta var ekki beinlínis í spurnarformi, en ég geri ráð
fyrir að merking þess, sem Ijósið sagði, hafi verið: „ Efþú
elskar mig, farðu þá eftur og kláraðu það, sem þú byrjaðir
á með lífi þínu. “ Og allan tímann á meðan á þessu stóð
var ég umlukinn feykilegum kœrleika og samúð. “
Hið útbreidda eðli nær-dauða reynslu (NDR) hefur verið
staðfest enn frekar í öðrum völdum byggðarlögum. Dr.
Bruce Greyson, sem upphaflega starfaði við háskólann í
Virginíu, safnaði fjölda NDR-frásagna ffá fólki sem hafði
lifað af sjálfsmorðstilraunir. Nancy Bush, við Alþjóða
stofnunina um rannsóknir á nær-dauða reynslu í Conn-
ecticut, fann fjölmörg tilfelli um frásagnir barna, sem höfðu
næstum dáið, en það er stórmerkileg uppgötvun, þar sem
24 MORGUNN